Innkalla sælgæti vegna lítilla málmflísa

Matvælastofnun vill vara við neyslu á vissum framleiðsludagsetningum af Haribo Click Mix, Stjerne Mix og Sutterskum sem Danól flytur inn, vegna aðskoðahluta sem geta verið í sælgætinu. Fyrirtækið hefur í samráði við heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur innkallað vöruna af markaði. Sala á þessum tegundum af sælgætinu var í: Bónus, Hagkaupum, Fjarðarkaupum, Heimkaupum, Nettó, Kjörbúðinni, Krambúðinni Extra, Melabúðinni, Versluninni Álfheimum ehf, Kaupfélagi Skagfirðinga og Corner shop.

Innkalla sælgæti vegna lítilla málmflísa - Skessuhorn