
Misserisverkefni standa yfir á Bifröst fyrri hluta næstu viku
Eitt af aðalsmerkjum BA og BS náms við Háskólann á Bifröst eru misserisverkefni, eða Missó, sem nemendur vinna að í 4-6 manna hópum tvisvar sinnum á námsferli sínum. Á meðal áhugaverðra rannsóknarefna nú má nefna áhrif uppsveiflu stýrivaxta Seðlabanka Íslands á greiðslubyrði lána sem tekin voru 2021, viðbrögð auglýsenda við því að útgáfu Fréttablaðsins var hætt, hvort z-kynslóðin eða eldri kynslóðir séu viljugri til að greiða meira fyrir vistvænar vörur og hvort þörf sé á löggjöf fyrir sýndarfé hvað skattframkvæmd varðar. Þá eru enn ónefnd fjölda verkefna, svo sem um menningartengd málefni og gervigreind - sem fræðast má nánar um í viðhengi hér að neðan.