
Atli Aðalsteinsson þjálfari Skallagríms.
„Hef notið hverrar stundar frá því ég hóf að þjálfa liðið“
Skallagrímur úr Borgarnesi keppti á dögunum við lið Hamars úr Hveragerði í fimm leikja einvígi um eitt laust sæti í Subway deild karla í körfuknattleik. Eftir mikla baráttu unnu Hamarsmenn einvígið í úrslitaleik og komust þar með upp í efstu deild á kostnað Skallagríms. Atli Aðalsteinsson var þjálfari liðsins í vetur ásamt aðstoðarmanni sínum Hafþóri Inga Gunnarssyni. Blaðamaður heyrði í Atla fyrir helgi til þess að ræða tímabilið í hnotskurn. Atli var í rólegheitum búinn að koma sér niður á jörðina eftir tímabilið enda langur og strangur vetur að baki.