
Hlaupakappinn Guðjón Ingi Sigurðsson. Ljósm. vaks
Hlaupin veita mér ánægju og gleði
Skagamaðurinn Guðjón Ingi Sigurðsson bar sigur úr býtum í hlaupakeppninni Bakgarður 101 sem fram fór í Öskjuhlíð í Reykjavík nýverið. 150 manns hófu keppni í hlaupinu þar til einn stóð eftir. Guðjón hljóp alls 207,7 km en hann hljóp 31 hring og var í harðri baráttu undir lokin við hlauparann Kristinn Gunnar. Reglurnar eru þannig í Bakgarðshlaupinu að hlaupinn er rúmlega 6,7 km hringur á hverjum klukkutíma. Sá sem hleypur flesta hringi er sá eini sem klárar hlaupið og stendur uppi sem sigurvegari. Til að klára hlaupið verður viðkomandi að ljúka síðasta hringnum einn. Eftir hvern hring gátu keppendur notað tímann sem var eftir af klukkutímanum til að hvílast og undirbúa sig fyrir næsta hring.