
Sigurbjörg Ottesen og Jakob Björgvin S. Jakobsson rita undir samninga. Ljósm. Stykkishólmur
Laugargerðisskóla lokað – Samið við Stykkishólm
Á fundi sínum 4. maí síðastliðinn samþykkti bæjarstjórn Sveitarfélagsins Stykkishólms samninga við Eyja- og Miklaholtshrepp um að veita börnum með lögheimili í hreppnum skólaþjónustu, þ.e. leikskóla, grunnskóla og tónlistarskóla. Hafa formlegar viðræður milli sveitarfélaganna um skólaþjónustu verið í gangi síðan í lok febrúar á þessu ári.