
Fósturvísarnir standa fyrir tónleikunum.
Tónleikar í Borgarneskirkju á laugardag
Laugardaginn 13. maí verða haldnir tónleikar í Borgarneskirkju til styrktar Píeta samtökunum. Það eru Fósturvísarnir sem halda tónleikana og syngja þar létt lög í bland við önnur en Fósturvísarnir eru tólf menn úr karlakórnum Fóstbræðrum. Fósturvísarnir hafa starfað saman síðan 2017 og segir Stefán Már Sturluson meðlimur kórsins að þeir syngi ekki endilega þessa hefðbundnu karlakóratónlist.
Tónleikarnir eru sem áður segir í Borgarneskirkju og hefjast klukkan 16. Aðgangseyrir er 2500 krónur og renna þær óskipt til Píetasamtakanna.