Fréttir

true

Markaþurrð á Vesturlandi í vikunni

Knattspyrnuliðin af Vesturlandi léku í liðinni viku og um helgina á Íslandsmótinu í knattspyrnu og virðast miðað við úrslit leikjanna alveg hafa gleymt að reima á sig markaskóna. Um var að ræða sjö viðureignir víða um landið hjá liðunum og í þessum leikjum öllum skoruðu þau ekki eitt einasta mark. Hver knattspyrnuleikur tekur um 90…Lesa meira

true

Nýr garðyrkjustjóri Borgarbyggðar

Í byrjun apríl hóf Piotr Wieslaw Kowalak störf sem nýr garðyrkjustjóri Borgarbyggðar. Piotr kemur frá Póllandi en hefur búið hér á landi síðastliðin fimm ár en áður starfaði hann hjá Steypustöðinni í Borgarnesi. Piotr er menntaður garðyrkjutæknimaður (e.gardener technician) með viðbótardiplómu í umhverfisstjórnun og verndun. Garðyrkjustjórinn vinnur nú að því að fegra garða og almenningssvæði…Lesa meira

true

Ókeypis hjólabrettanámskeið fyrir börn

Í sumar verður boðið upp á sumarnámskeið í hjólabrettagarðinum á Hellissandi. Í upphafi árs opnaði hjólabrettagarðurinn og hefur börnum á öllum aldri staðið til boða að mæta á æfingar endurgjaldslaust frá fyrsta degi. Verkefnið er samstarf Snæfellsbæjar og UMF Víkings/Reynis og stuðlar að auknum fjölbreytileika þeirra íþróttagreina sem stendur til boða í sveitarfélaginu. Sumarnámskeiðið verður…Lesa meira

true

Kynntu tillögu að hagnýtu og heildstæðu skipulagi fyrir Borgarnes

Landbúnaðarháskóli Íslands stóð í byrjun vikunnar fyrir viðburði þar sem kynntur var afrakstur vinnu á námsbraut í skipulagsfræði sem nefnist „Hagnýtt og heildstætt skipulag.“ Nemendur voru þær Díana Berglind Valbergsdóttir, Elísabet Bjarnadóttir og Þóra Margrét Júlíusdóttir. Kynntu þær samstarfsverkefni sitt, en að þessu sinni var viðfangsefnið ný framtíðarsýn fyrir Borgarnes. Arna Mathiesen arkitekt var leiðbeinandi…Lesa meira

true

Lögráðamaður dæmdur fyrir fjárdrátt

Héraðsdómur Vesturlands hefur dæmt skipaðan lögráðamann einstaklings til sex mánaða fangelsisvistar fyrir að hafa á fimm ára tímabili ítrekað dregið sér fé af reikningi skjólstæðings síns. Dómurinn er skilorðsbundinn til þriggja ára haldi viðkomandi almennt skilorð skv. 57. grein hegningarlaga. Þá er lögráðamanninum gert að endurgreiða rúmar þrjár milljónir króna til skjólstæðings síns auk þess…Lesa meira

true

Skagakonur töpuðu stórt fyrir KR í Mjólkurbikarnum

ÍA fékk Bestu deildar lið KR í heimsókn á Akranesvöll á laugardaginn en tilefnið var leikur í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins. Eftir fimmtán mínútna leik kom Rasamee Phonsongkham KR yfir í leiknum og Bergdís Fanney Einarsdóttir bætti síðan við tveimur mörkum, staðan 0-3 fyrir KR í hálfleik. Ísabella Sara Tryggvadóttir skoraði síðan tvö mörk fyrir KR…Lesa meira

true

ÍA fær Breiðablik í Mjólkurbikarnum

Dregið var í hádeginu í dag í 16-liða úrslit Mjólkurbikars karla í knattspyrnu en drátturinn fór fram í höfuðstöðvum KSÍ í Laugardalnum. Skagamenn sem fengu silfur í Mjólkurbikarnum á síðasta ári hefðu getað verið heppnari með andstæðing í 16-liða úrslitunum. Þeir fengu heimaleik gegn Breiðablik sem hafa unnið alla átta leiki sína í Bestu deild…Lesa meira

true

Markalaust jafntefli hjá Víkingi fyrir austan

Höttur/Huginn og Víkingur Ólafsvík áttust við í 2. deild karla í knattspyrnu á laugardaginn og var leikurinn á Fellavelli á Egilsstöðum. Höttur/Huginn hafði tapað öllum þremur leikjum sínum í deildinni til þessa á meðan Ólsarar höfðu tapað tveimur og gert eitt jafntefli. Því var um botnbaráttuslag að ræða og mikilvægt fyrir bæði lið að ná…Lesa meira

true

Kári tapaði fyrir Dalvík/Reyni

Kári og Dalvík/Reynir léku í fjórðu umferð í 3. deild karla í knattspyrnu á laugardaginn og fór leikurinn fram í Akraneshöllinni. Norðanmenn voru á toppnum fyrir leik með fullt hús stiga en Kári með fjögur og því möguleiki fyrir Kára að koma sér nær toppbaráttunni með sigri. Þær vonir fóru þó fljótlega út um þúfur…Lesa meira

true

Fimm sækja um Borgarprestakall

Biskup Íslands auglýsti fyrr í vor eftir sóknarpresti til þjónustu í Borgarprestakalli í Vesturlandsprófastsdæmi. Séra Þorbjörn Hlynur Árnason sóknarprestur og prófastur lætur brátt af störfum vegna aldurs. Umsóknarfrestur um starfið rann út 26. maí síðastliðinn. Alls sóttu fimm um en einn umsækjandi óskar nafnleyndar. Það eru: Sr. Bryndís Svavarsdóttir, Heiðrún Helga Back, mag. theol., Sr.…Lesa meira