
Landsliðskonurnar Guðný Árnadóttir og Cecilía Rán Rúnarsdóttir sáu um að draga. Skjáskot af vef ksí.
ÍA fær Breiðablik í Mjólkurbikarnum
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Dregið var í hádeginu í dag í 16-liða úrslit Mjólkurbikars karla í knattspyrnu en drátturinn fór fram í höfuðstöðvum KSÍ í Laugardalnum. Skagamenn sem fengu silfur í Mjólkurbikarnum á síðasta ári hefðu getað verið heppnari með andstæðing í 16-liða úrslitunum. Þeir fengu heimaleik gegn Breiðablik sem hafa unnið alla átta leiki sína í Bestu deild karla í sumar og unnu til að mynda Val 6-2 í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins. Þar verður því erfitt verkefni sem bíður Skagamanna en auðvitað getur allt gerst í bikarnum.\r\n\r\nAðrir leikir í 16-liða úrslitunum eru: FH-ÍR, KA-Fram, Selfoss-Víkingur R., Ægir-Fylkir, HK-Dalvík/Reynir, Njarðvík-KR og Kórdrengir-Afturelding. Leikirnir fara fram dagana 26. til 28. júní en leikur ÍA og Breiðabliks verður mánudaginn 27. júní og hefst klukkan 19.15.\r\n\r\nÞá var dregið í 8-liða úrslit í Mjólkurbikar kvenna og þar mætast Valur-KR, Selfoss-Þór/KA, ÍBV-Stjarnan og Breiðablik-Þróttur. Leikdagar eru 10. og 11. júní næstkomandi.",
"innerBlocks": []
}