{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Í sumar verður boðið upp á sumarnámskeið í hjólabrettagarðinum á Hellissandi. Í upphafi árs opnaði hjólabrettagarðurinn og hefur börnum á öllum aldri staðið til boða að mæta á æfingar endurgjaldslaust frá fyrsta degi. Verkefnið er samstarf Snæfellsbæjar og UMF Víkings/Reynis og stuðlar að auknum fjölbreytileika þeirra íþróttagreina sem stendur til boða í sveitarfélaginu. Sumarnámskeiðið verður með sambærilegu sniði. Öllum börnum í Snæfellsbæ stendur til boða þátttaka á námskeiðinu án endurgjalds. Snæfellsbær og Barna- og menningarmálaráðuneytið niðurgreiða námskeiðsgjöld. Námskeiðinu verður skipt í tvö tímabil og fer fram í íþróttahúsinu á Hellissandi.",
"innerBlocks": []
}
Ókeypis hjólabrettanámskeið fyrir börn - Skessuhorn