Borg á Mýrum. Ljósm. Skessuhorn/ hlh.

Fimm sækja um Borgarprestakall

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Biskup Íslands auglýsti fyrr í vor eftir sóknarpresti til þjónustu í Borgarprestakalli í Vesturlandsprófastsdæmi. Séra Þorbjörn Hlynur Árnason sóknarprestur og prófastur lætur brátt af störfum vegna aldurs. Umsóknarfrestur um starfið rann út 26. maí síðastliðinn. Alls sóttu fimm um en einn umsækjandi óskar nafnleyndar. Það eru: Sr. Bryndís Svavarsdóttir, Heiðrún Helga Back, mag. theol., Sr. Kristján Arason og Sr. Þórir Jökull Þorsteinsson. Í auglýsingunni kom fram að miðað væri við að viðkomandi gæti hafið störf 1. október nk. Á vef Þjóðkirkjunnar segir að allar gildar umsóknir fari nú til valnefndar sem fer yfir þær og boðar umsækjendur til viðtals innan þriggja vikna frá lokum umsóknarfrests.\r\n\r\nSamkvæmt Þjóðskrá 1. desember síðastliðinn voru skráðir íbúar í Borgarprestakalli 2.363. Þar af var 1.691 skráðir í Þjóðkirkjuna og 1.352 gjaldendur 16 ára og eldri.",
  "innerBlocks": []
}
Fimm sækja um Borgarprestakall - Skessuhorn