Lögráðamaður dæmdur fyrir fjárdrátt

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Héraðsdómur Vesturlands hefur dæmt skipaðan lögráðamann einstaklings til sex mánaða fangelsisvistar fyrir að hafa á fimm ára tímabili ítrekað dregið sér fé af reikningi skjólstæðings síns. Dómurinn er skilorðsbundinn til þriggja ára haldi viðkomandi almennt skilorð skv. 57. grein hegningarlaga. Þá er lögráðamanninum gert að endurgreiða rúmar þrjár milljónir króna til skjólstæðings síns auk þess að greiða vexti af upphæðinni, verðbætur og þóknun til réttargæslumanns brotaþola. Dæmt er á forsendum þess að um fjárdrátt hafi verið að ræða og brot í opinberu starfi sem skipaður lögráðamaður. Fram kemur í dómnum að viðkomandi hafi gengist við brotum sínum, en í 178 tilfellum millifærði lögráðamaðurinn fjárhæðir af reikningi skjólstæðings síns inn á sinn eigin bankareikning.",
  "innerBlocks": []
}
Lögráðamaður dæmdur fyrir fjárdrátt - Skessuhorn