Nemendurnir ásamt Örnu Mathiesen arkitekt sem var leiðbeinandi á námskeiðinu. Ljósm. LbhÍ.

Kynntu tillögu að hagnýtu og heildstæðu skipulagi fyrir Borgarnes

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Landbúnaðarháskóli Íslands stóð í byrjun vikunnar fyrir viðburði þar sem kynntur var afrakstur vinnu á námsbraut í skipulagsfræði sem nefnist „Hagnýtt og heildstætt skipulag.“ Nemendur voru þær Díana Berglind Valbergsdóttir, Elísabet Bjarnadóttir og Þóra Margrét Júlíusdóttir. Kynntu þær samstarfsverkefni sitt, en að þessu sinni var viðfangsefnið ný framtíðarsýn fyrir Borgarnes.\r\n\r\nArna Mathiesen arkitekt var leiðbeinandi á námskeiðinu. Hún segir að nemendur fái í gegnum þetta námskeið færi á að spreyta sig sem hönnuðir á skipulagi, ekki ósvipað og þegar tekið er þátt í skipulagssamkeppnum. „Þetta er ólíkt daglegu amstri skipulagssviða sveitarfélagana að því leyti að nemendum er lyft á efra sjónarhól þar sem ögranir samtímans standa í röðum – og nemendurnir læra á ýmis tól sem eru fyrir hendi til að fá yfirsýn, tileinka sér gagnrýna hugsun og þeir þjálfast í að setja fram nýjar hugmyndir. Hér er pláss til að hugsa út fyrir kassann, að hugsa óháð, og jafnvel leggja fram ögrandi spurningar varðandi forsendur sem virðast hafa legið í kortunum lengi, en væri jafnvel vert að endurskoða í ljósi þess nýjasta í fræðunum, með sjálfbæra þróun að leiðarljósi,“ segir Arna.\r\n\r\nHún segir að markmiðið hafi verið að kanna hvernig framtíðarsýn Borgarness gæti sem best samrýmst markmiðum sjálfbærrar þróunar, en áhersla Borgarness á heilsueflingu er einmitt á þessum nótum. „Þegar litið er á heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna í þessum efnum sjáum við vel að nánast allt sem hægt er að gera til að sporna við loftslagsbreytingum og varðveislu og framþróun vistkerfa lýtur að hinu byggða umhverfi. Höfuðatriði í sjálfbærnihugsun er að byrja ekki á neinu nýju sem gæti fært hlutina til verri vegar, en kappkostað frekar að endurnýta og bæta þá innviði sem til eru en ekki virka nægilega vel sem stendur.“\r\n\r\n<strong>Uppbygging án vaxtar</strong>\r\n\r\nTillaga nemendanna kallast „Uppbygging án vaxtar.“ Í lýsingu á tillögum þeirra segir:\r\n\r\n„Leggja þeir til að þróa miðbæ fyrir fjölskrúðugt mannlíf á flæmum sem nú er lögð undir uppundir 500 bílastæði, bensínstöðvar og sjoppur miðsvæðis í bænum. Form bygginganna svipar til byggðamynsturs gamla hluta Borgarness sem er þekkt fyrir einstakan sjarma. Nemendurnir sýndu teikningar, kort og módel með nýrri byggð á tveimur til þremur hæðum sem gæti rúmað 6.700m2 verslunar- og þjónustuhúsnæði, en ennfremur 34.600m2 fyrir íbúðarhúsnæði sem gæti rúmað u.þ.b. 1.470 íbúa. Hér gæfist kostur á minni íbúðum, sem henta betur eldri kynslóðinni sem kæmust þá úr íþyngjandi einbýli sem hentar betur barnafjölskyldum. Einnig væri þetta góður kostur fyrir unga fólkið sem ekki hefur efni á sérbýli, eins og er ráðandi íbúðagerð í Borgarnesi í dag. Starfsemi sem er opin fyrir almenning á fyrstu hæð gæti lokkað fólk til að fara ferða sinna fótgangandi með tilheyrandi heilsueflingu og um leið ljáð útirýmunum líf. Hér yrði líka til sýnis og sölu allt það besta sem Borgarnes og Borgarbyggð hefði upp á að bjóða. Nýi miðbærinn myndi þannig lokka fólk til að staldra við og njóta Borgarness á annan hátt en er í dag. Verkefni nemendanna sýnir hvernig þjóðveginum yrði þá breytt í líflega bæjargötu með hægri umferð, hjóla- og göngustígum á leið í gegnum byggðina með gróðri og blómlegri þjónustu, mörkuðum og torgum. Þetta er leið sem farin hefur verið í bæjum í Noregi með góðum árangri, en reynslan sýnir að þegar þjóðvegur flyst út úr bæjum flyst þungamiðja verslunar út úr, og byggðin dreifist með tilheyrandi áskorunum og óþarfa bílakeyrslu. Hver veit hvort Borgarbyggð setji þróun miðbæjarins í forgang áður en ráðist verður í dýrar nýjar innviðaframkvæmdir sem stækka bæinn að óþörfu?“\r\n\r\nTillögur nemendanna má sjá í glugga á neðstu hæð Digranesgötu 2 í Borgarnesi, væntanlegs ráðhúss, og er öllum velkomið að skoða.",
  "innerBlocks": []
}
Kynntu tillögu að hagnýtu og heildstæðu skipulagi fyrir Borgarnes - Skessuhorn