Fréttir

true

Fylltu Grímshúsið og sáu úrslitaleikinn á risaskjá

Síðastliðinn laugardag var stór dagur hjá Liverpool aðdáendum. Þá var leikið til úrslita í Meistaradeild Evrópu þegar Real Madrid og Liverpool áttust við. Víða um heim komu stuðningsmenn liðanna saman. Í Borgarnesi stóðu þeir Haukur Erlingsson og Hafþór Gunnarsson, formenn Liverpool klúbbsins, fyrir því að taka á leigu Grímshúsið í Brákarey. Viðburðurinn var í samstarfi…Lesa meira

true

Guðríður víðförla komin á stallinn sinn að nýju

Styttan af hinni víðförlu Guðríði Þorbjarnardóttur var aftur sett á stall sinn á fæðingarstað hennar á Laugarbrekku á Hellnum síðastliðinn laugardag. Styttan er afsteypa af verki Ásmundar Sveinssonar og nefnist Fyrsta hvíta móðirin í Ameríku. Henni var stolið frá Laugarbrekku í byrjun apríl en birtist síðar sem hluti af einhvers konar listgjörningi í Reykjavík skömmu…Lesa meira

true

Unnið að lagningu ljósleiðara í Grundarfirði

Starfsmenn Mílu og undirverktakar vinna nú hörðum höndum við lagningu ljósleiðara í Grundarfirði. Búið er að leggja ljósleiðarann í Sæbóli og vinna stendur yfir að ljósleiðaravæða Grundargötuna. Það verður töluverður munur á fjarskiptagæðum þegar þetta verður komið í gagnið en talsvert hefur verið um truflanir á netsambandi í mörgum húsum í Grundarfirði upp á síðkastið.Lesa meira

true

Samstarfssamningur Hvalfjarðarsveitar og ÍA

Í liðinni viku fór fram undirskrift samstarfssamnings milli Hvalfjarðarsveitar og Íþróttabandalags Akraness. Markmið Hvalfjarðarsveitar með samningnum er að styðja við öflugt íþrótta-, forvarna- og félagsstarf sem fram fer innan ÍA, hjá aðildarfélögum þess, fyrir samfélagið í Hvalfjarðarsveit. Samningurinn tryggir að íbúar í Hvalfjarðarsveit eigi kost á að stunda hvers kyns starf sem fram fer innan…Lesa meira

true

Tilbúnar að skvetta úr klaufunum með Nivea-30 sólarvörn

Það er jafnan mikil gleðistund hjá kúnum þegar bændur hleypa þeim út í fyrsta sinn í byrjun sumars eftir alla inniveruna. Það var og kátt yfir kúnum á Vestra-Reyni eftir hádegið í dag þegar þær fengu að fara út í góða veðrið. Fyrst var þeim hleypt út í gerði við fjósið þar sem mestu gleðistökkin…Lesa meira

true

Tvíburasystur jafnar og með bestan námsárangur

Föstudaginn 27. maí voru 36 nemendur brautskráðir frá Menntaskóla Borgarfjarðar í Borgarnesi. Sá fáheyrði atburður átti sér stað að með bestan námsárangur á stúdentsprófi voru tvíburasystur, þær Þóra Kristín og Ásrún Adda Stefánsdætur. Báðar voru þær með einkunnina 9,32 og fengu fyrir það viðurkenningu frá Arion banka. Þórunn Sara Arnarsdóttir nýstúdent flutti ávarp á brautskráningunni…Lesa meira

true

Alexandrea er heimsmeistari í klassískri bekkpressu

Alexandrea Rán Guðnýjardóttir lyftingakona ur Borgarnesi hefur á liðinni viku tekið þátt á heimsmeistaramóti unglinga í bekkpressu, en mótið fer fram í Kasakstan. Fyrir um viku gerði hún sér lítið fyrir og vann til silfurverðlauna þegar hún lyfti tvöfaldri þyngd sinni, en hún keppir í -63 kílóa flokki. Lyfti hún 125 kílóum og bætti þar…Lesa meira

true

Nú getur fólk sett skatta í greiðsludreifingu

Ný sjálfsafgreiðsluþjónusta á Ísland.is gerir notendum kleift að gera greiðsluáætlun og dreifa greiðslum opinberra gjalda á þeim stað og tíma sem þeim hentar. „Sem dæmi geta notendur sjálfir gert áætlanir um greiðslu flestra gjalda, svo sem skatta og önnur gjöld, undir fjármálum á Ísland.is. Um mánaðamótin verða niðurstöður álagningar einstaklinga 2022, vegna tekna 2021, birtar…Lesa meira

true

Sæmundur skrifaði Árbók Ferðafélags Íslands

Árbók Ferðafélags Íslands 2022 er komin út og fjallar að þessu sinni um vestasta hluta Snæfellsness; svæðið undir Jökli. Höfundur meginefnis er fræðimaðurinn og leiðsögumaðurinn Sæmundur Kristjánsson í Rifi en Daníel Bergmann skrifar náttúrukafla og tekur langflestar myndirnar. Báðir eiga þeir ættir að rekja til Snæfellsness. Sæmundur starfaði lengi sem hafnarvörður í Rifshöfn og vann…Lesa meira

true

Enn mikið um fuglaflensu í villtum fuglum

Matvælastofnun berast enn margar tilkynningar um veika og dauða villta fugla. Skæð fuglaflensa hefur greinst í mörgum af þeim sýnum sem tekin hafa verið. Stofnunin telur nauðsynlegt að viðhalda enn um sinn þeim sóttvarnaráðstöfunum sem í gildi eru. Á þessu ári hefur Matvælastofnun fengið hátt í fjögur hundruð ábendingar um dauða og veika fugla. Starfsmenn…Lesa meira