
: Linda Björk Pálsdóttir sveitarstjóri og Guðmunda Ólafsdóttir framkvæmdastjóri ÍA við undirritun samningsins. Ljósm. Hvalfjarðarsveit.
Samstarfssamningur Hvalfjarðarsveitar og ÍA
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Í liðinni viku fór fram undirskrift samstarfssamnings milli Hvalfjarðarsveitar og Íþróttabandalags Akraness. Markmið Hvalfjarðarsveitar með samningnum er að styðja við öflugt íþrótta-, forvarna- og félagsstarf sem fram fer innan ÍA, hjá aðildarfélögum þess, fyrir samfélagið í Hvalfjarðarsveit. Samningurinn tryggir að íbúar í Hvalfjarðarsveit eigi kost á að stunda hvers kyns starf sem fram fer innan Íþróttabandalagsins og aðildarfélaga þess, hvort sem um er að ræða íþrótta-, forvarna-, félagsstarf eða annað.\r\n\r\nFram kemur í frétt á heimasíðu Hvalfjarðarsveitar að auk samningsbundinna fjárhæða til Íþróttabandalagsins, sem bæði eru tengdar íbúafjölda sem og iðkendafjölda, býður Hvalfjarðarsveit foreldrum barna, frá fæðingu að 18 ára aldri, auk þess niðurgreiðslu íþrótta- og tómstundagjalda, hjá viðurkenndum félögum, í formi tómstundastyrks. Styrkurinn er til þess ætlaður að stuðla að aukinni þátttöku barna og ungmenna í íþrótta- og tómstundastarfi og efla þar með enn frekar barna- og ungmennastarf.",
"innerBlocks": []
}