Fylltu Grímshúsið og sáu úrslitaleikinn á risaskjá
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Síðastliðinn laugardag var stór dagur hjá Liverpool aðdáendum. Þá var leikið til úrslita í Meistaradeild Evrópu þegar Real Madrid og Liverpool áttust við. Víða um heim komu stuðningsmenn liðanna saman. Í Borgarnesi stóðu þeir Haukur Erlingsson og Hafþór Gunnarsson, formenn Liverpool klúbbsins, fyrir því að taka á leigu Grímshúsið í Brákarey. Viðburðurinn var í samstarfi við BaraBar sem skaffaði TukTuk bíl, pylsur og meðlæti. Risaskjá var komið upp og mættu ríflega 150 rauðklæddir í eyjuna til að styðja sína menn. Að vísu fór leikurinn ekki þeim í hag, því Real Madrid sigraði með einu marki Vinicius eftir um klukkutíma leik. „Mætingin fór fram úr okkar björtustu vonum og stemningin var frábær,“ sagði Haukur sem sendi Skessuhorni meðfylgjandi myndir.\r\n\r\n[gallery columns=\"2\" size=\"large\" ids=\"53781,53782\"]",
"innerBlocks": []
}
Fylltu Grímshúsið og sáu úrslitaleikinn á risaskjá - Skessuhorn