Nýstúdentarnir ásamt skólameistara og aðstoðarskólameistara. Bjart og fallegt veður var á þessum hátíðisdegi. Ljósm. MB

Tvíburasystur jafnar og með bestan námsárangur

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Föstudaginn 27. maí voru 36 nemendur brautskráðir frá Menntaskóla Borgarfjarðar í Borgarnesi. Sá fáheyrði atburður átti sér stað að með bestan námsárangur á stúdentsprófi voru tvíburasystur, þær Þóra Kristín og Ásrún Adda Stefánsdætur. Báðar voru þær með einkunnina 9,32 og fengu fyrir það viðurkenningu frá Arion banka.\r\n\r\nÞórunn Sara Arnarsdóttir nýstúdent flutti ávarp á brautskráningunni auk þess sem Sólveig Heiða Úlfsdóttir fulltrúi tíu ára stúdenta flutti ræðu. Ásmundur Einar Daðason mennta- og barnamálaráðherra var viðstaddur útskriftina og hvatti nemendur til að fylgja hjartanu og taka óhræddir móti næstu áskorunum. Hann talaði einnig til aðstandenda nemendanna og minnti á að mikilvægt væri að sleppa takinu og styðja þau í öllu því sem þau vildu gera.\r\n\r\nTónlistaratriði við brautskráningu voru í höndum þriggja fyrrverandi og núverandi nemenda við skólann eða þeirra Steinþórs Loga Arnarssonar og systranna Sigurdísar Kötlu Jónsdóttur og Alexöndru Rutar Jónsdóttur.\r\n\r\nLilja S. Ólafsdóttir aðstoðarskólameistari flutti annál skólans og lauk honum með sömu orðum og þegar hún ávarpaði nýstúdenta fyrir tíu árum enda var sá afmælisárgangur viðstaddur athöfnina að þessu sinni. Bragi Þór Svavarsson skólameistari talaði til útskriftarnema í lok athafnar og óskaði þeim gæfu og gengis. Hann hvatti nemendur til áframhaldandi góðra verka hvort heldur væri í leik eða starfi og nefndi mikilvægi þess að ungt fólk tæki þátt í samfélaginu og léti til sína taka.\r\n\r\n<img class=\"alignnone size-medium wp-image-53772\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/05/Tviburasystur-jafnar-og-med-bestan-namsarangur_2-600x469.jpg\" alt=\"\" />",
  "innerBlocks": []
}
Tvíburasystur jafnar og með bestan námsárangur - Skessuhorn