Skvett úr klaufunum í gerði við fjósið. Ljósm. mm.

Tilbúnar að skvetta úr klaufunum með Nivea-30 sólarvörn

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Það er jafnan mikil gleðistund hjá kúnum þegar bændur hleypa þeim út í fyrsta sinn í byrjun sumars eftir alla inniveruna. Það var og kátt yfir kúnum á Vestra-Reyni eftir hádegið í dag þegar þær fengu að fara út í góða veðrið. Fyrst var þeim hleypt út í gerði við fjósið þar sem mestu gleðistökkin voru tekin. Síðan var þeim hleypt áfram og út á slétturnar neðan við bæinn þar sem kafgras beið þeirra. Þau Haraldur og Lilja Guðrún bændur á Vestra-Reyni segja að gömlu kýrnar hafi vitað það upp á hár í morgun hvað dagurinn bæri í skauti sínu. Eftir mjaltir var borið á júgrin og spenana Nivea áburður með sólarvörn upp á 30, mun betri vörn en hefðbundin júgurfeiti. „Þær þessar gömlu þekkja lyktina af Nivea áburðinum og vita því hvað stendur til. Komu sér fyrir í röð innan við fjósdyrnar og biðu þess að opnað væri fyrir þeim,“ sagði Haraldur.\r\n\r\n[gallery columns=\"2\" size=\"large\" ids=\"53775,53776,53777,53778\"]",
  "innerBlocks": []
}