
Kristinn, landeigendur og Ragnhildur við styttuna. Ljósm. af.
Guðríður víðförla komin á stallinn sinn að nýju
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Styttan af hinni víðförlu Guðríði Þorbjarnardóttur var aftur sett á stall sinn á fæðingarstað hennar á Laugarbrekku á Hellnum síðastliðinn laugardag. Styttan er afsteypa af verki Ásmundar Sveinssonar og nefnist Fyrsta hvíta móðirin í Ameríku. Henni var stolið frá Laugarbrekku í byrjun apríl en birtist síðar sem hluti af einhvers konar listgjörningi í Reykjavík skömmu síðar. Lögregla lagði hald á verkið og í kjölfar dómsúrskurðar var styttan frelsuð úr tunnunni sem henni hafði verið komið fyrir í.\r\n\r\nListaverkinu var komið fyrir á stalli sínum á laugardaginn. Við það tækifæri sagði Ragnhildur Sigurðardóttir á Álftavatni, framkvæmdastjóri Svæðisgarðsins, frá sögu Guðríðar víðförlu.",
"innerBlocks": []
}