Fréttir

true

Mikið líf á Arnarstapa

Guðmundur Eyþór Már Ívarsson hafnarvörður á Arnarstapa segir að þessa dagana sé mikið líf í og við höfnina. Stöðugur straumur ferðamanna er á svæðinu til þess að fanga fegurðina og skoða sig um í náttúrunni, svo sem að skoða fugla af fjölmörgum tegundum og fara í gönguferðir. Gönguleiðin frá Arnarstapa að Hellnum er til að…Lesa meira

true

Kirkjukór í kántrýsveiflu

Kirkjukór Ólafsvíkur ásamt hljómsveit stóð fyrir vortónleikum eins og svo oft áður. Tónleikarnir í ár voru með nokkuð öðru sniði en venjulega en yfirskrift þeirra var „Country og sveitarómantík“ og fóru fram í Reiðhöllinni í Ólafsvík. Efnisskráin var fjölbreytt og samanstóð af einsöng og kórsöng á vinsælum íslenskum og erlendum lögum. Veronica Osterhammer kórstjóri kórsins,…Lesa meira

true

Leiðtogaumræður í beinni frá Borgarbyggð í kvöld

Í kvöld, miðvikudaginn 11. maí, fara fram leiðtogaumræður í Borgarbyggð í beinni útsendingu frá blikksmiðju Límtrés Vírnets í Borgarnesi. Það er Kvikmyndafjelag Borgarfjarðar sem skipuleggur viðburðinn og sendir út á kvikborg.is, en sömuleiðis hér á skessuhorn.is Í Borgarbyggð eru fjórir framboðslistar og sendir hver þeirra tvo fulltrúa. Þetta eru Framsóknarflokkur, Sjálfstæðisflokkur, sameiginlegt framboð Samfylkingar og…Lesa meira

true

Umhverfisvaktin ályktar um losun mengandi efna

Umhverfisvaktin við Hvalfjörð samþykkti á síðasta aðalfundi sínum ályktun, sem óskað var eftir birtingu á. Hún er svohljóðandi: „Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð, haldinn 7. apríl 2022, skorar á ríkisstjórn Íslands að láta fara fram endurskoðun á starfsleyfum stóriðjufyrirtækjanna á Grundartanga, með það að markmiði að þau dragi nú þegar úr losun mengandi efna svo sem…Lesa meira

true

Ragnar Leósson genginn til liðs við Kára

Knattspyrnulið Kára á Akranesi hefur fengið góðan liðsstyrk fyrir komandi átök í 3. deild karla í knattspyrnu í sumar. Ragnar Leósson er kominn aftur á Skagann og ætlar að taka slaginn með Kára í annað skiptið á ferlinum. Ragnar spilaði lykilhlutverk í liði Fjölnis í fyrra þegar liðið var hársbreidd frá því að ná sæti…Lesa meira

true

Spænskur sóknarmaður í Víking Ólafsvík

Knattspyrnudeild Víkings í Ólafsvík hefur samið við spænska leikmanninn Luis Romero um að leika með liðinu í sumar. Í fréttatilkynningu frá Víkingi segir að hinn 23 ára Luis Romero sé eldfljótur og fjölhæfur leikmaður sem geti leyst nokkrar stöður framarlega á vellinum. Romero hefur leikið víða á ferlinum og meðal annars verið í unglingaliðum Real…Lesa meira

true

Tími grænmetis og sumarblóma

Nú vonast flestir eftir hlýindum sumarsins og fagna því að gróðurinn lifnar. Eitt af því sem gleður landann á sumrin er ferska grænmetið og það að geta útvegað sér sumarblóm. Hjónin Þórður Ingimar Runólfsson og Áslaug Sigvaldadóttir reka Ræktunarstöðina Lágafell í Eyja- og Miklaholtshreppi sem á tuttugu ára afmæli á þessu ári. Blaðamaður Skessuhornsins leitaði…Lesa meira

true

Viljalýsing undirrituð um uppbyggingu græns iðngarðs á Grundartanga

Í morgun undirrituðu eigendur Þróunarfélags Grundartanga og fyrirtækin sem starfa á Grundartangasvæðinu viljayfirlýsingu um uppbyggingu græns iðngarðs með hringrásarhugsun á Grundartanga og fór undirritunin fram í sal mötuneytis Norðuráls á Grundartanga. Í uppbyggingunni felst að mótuð verði fyrirmyndar sjálfbærniumgjörð fyrir svæðið og unnið að uppbyggingu hringrásarhagkerfis með bættri fjölnýtingu auðlinda og innviða. Grundartangi sem grænn…Lesa meira

true

Jafnaldrar kaupstaðarins fengu blóm

Við vígslu Þjónustumiðstöðvarinnar við Dalbraut, sem vígð var formlega í liðinni viku var skemmtileg uppákoma. Þá afhenti Guðríður Sigurjónsdóttir sem sæti á í menningar- og safnanefnd Akraneskaupstaðar, öllum þeim sem verða 80 ára á árinu gjöf frá Akraneskaupstað. Þau eru fædd sama ár og kaupstaðurinn hlaut kaupstaðaréttindi árið 1942.Lesa meira

true

Fiskmóttaka fyrir alla á Akranesi

Í frétt í Skessuhorni í síðustu viku var m.a. sagt frá grillveislu sem Sæljón, félag smábátaeigenda á Akranesi, stóð nýverið fyrir við Akraneshöfn. Í fréttinni var missagt að Böðvar Ingvason væri starfsmaður Fiskmarkaðs Snæfellsbæjar. Svo er ekki lengur. Hið rétta er að Böðvar rekur fiskmóttöku á Akranesi og þjónar þar hverjum þeim sem landa vill…Lesa meira