
Ragnar Leósson er kominn í Kára. Ljósm. af FB síðu Kára
Ragnar Leósson genginn til liðs við Kára
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Knattspyrnulið Kára á Akranesi hefur fengið góðan liðsstyrk fyrir komandi átök í 3. deild karla í knattspyrnu í sumar. Ragnar Leósson er kominn aftur á Skagann og ætlar að taka slaginn með Kára í annað skiptið á ferlinum.\r\n\r\nRagnar spilaði lykilhlutverk í liði Fjölnis í fyrra þegar liðið var hársbreidd frá því að ná sæti í Bestu deildinni en hann spilaði 21 leik og skoraði í þeim fjögur mörk. Leikjaferill Ragnars er ansi langur og fjölbreyttur en samtals hefur hann spilað 302 leiki hér heima og skorað 49 mörk. Þar af eru 60 leikir í efstu deild og þrjú mörk og 139 leikir í 1.deild og 26 mörk. Hér heima hefur Ragnar spilað með ÍA, ÍBV, Fjölni, Leikni R, HK og Kára. Ragnar á jafnframt 16 leiki með yngri landsliðum Íslands.",
"innerBlocks": []
}