Viljalýsing undirrituð um uppbyggingu græns iðngarðs á Grundartanga
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Í morgun undirrituðu eigendur Þróunarfélags Grundartanga og fyrirtækin sem starfa á Grundartangasvæðinu viljayfirlýsingu um uppbyggingu græns iðngarðs með hringrásarhugsun á Grundartanga og fór undirritunin fram í sal mötuneytis Norðuráls á Grundartanga.\r\n\r\nÍ uppbyggingunni felst að mótuð verði fyrirmyndar sjálfbærniumgjörð fyrir svæðið og unnið að uppbyggingu hringrásarhagkerfis með bættri fjölnýtingu auðlinda og innviða. Grundartangi sem grænn iðngarður stefnir á að verða leiðandi á heimsvísu enda eru allar forsendur til staðar. Meðal verkefna sem framundan eru má nefna stofnun samstarfsklasa aðilanna á Grundartanga og annarra hagaðila og fjölnýtingaverkefni svo sem stofnun hitaveitu sem getur nýtt varma frá Elkem og Norðuráli. Verndari verkefnisins er Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis, orku- og loftslagsráðherra.\r\n\r\nÓlafur Adolfsson, stjórnarformaður Þróunarfélags Grundartanga, setti fundinn og kynnti verkefnið. Þá tóku einnig til máls Guðlaugur Þór, Sigrún Helgadóttir forstjóri Norðuráls á Grundartanga, Sædís Alexía Sigurmundsdóttir frá Elkem, Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri Akraness, Linda Björk Pálsdóttir sveitarstjóri Hvalfjarðarsveitar og Þorsteinn Gunnarsson borgarritari.\r\n\r\nÁ Grundartanga er góð hafnaraðstaða og þar er langstærsta iðnaðarsvæði Vesturlands þar sem starfa um ellefu hundruð manns auk þess sem rekja má um þúsund afleidd störf til starfsemi svæðisins.\r\n\r\n<img class=\"alignnone size-medium wp-image-53381\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/05/Viljalysing-undirritud-um-uppbyggingu-graens-idngards-a-Grundartanga2-600x450.jpg\" alt=\"\" />",
"innerBlocks": []
}
Viljalýsing undirrituð um uppbyggingu græns iðngarðs á Grundartanga - Skessuhorn