{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Kirkjukór Ólafsvíkur ásamt hljómsveit stóð fyrir vortónleikum eins og svo oft áður. Tónleikarnir í ár voru með nokkuð öðru sniði en venjulega en yfirskrift þeirra var „Country og sveitarómantík“ og fóru fram í Reiðhöllinni í Ólafsvík.\r\n\r\nEfnisskráin var fjölbreytt og samanstóð af einsöng og kórsöng á vinsælum íslenskum og erlendum lögum. Veronica Osterhammer kórstjóri kórsins, Ólafur Vignir Sigurðsson og Sigurður Höskuldsson sungu einsöng. Hljómsveitin var skipuð góðu fólki, þeim Valentinu Kay á orgel, Evgeny Makeev á bassa, Sigurður Höskuldsson spilaði á gítar og Sveinn Þór Elínbergsson á trommur. Til að gera stemninguna sem besta höfðu kórfélagar klætt sig í stíl við kántrýþemað og búið var að setja upp svið, hljóðgræjur og koma fyrir stólum fyrir tónleikagesti.\r\n\r\nMjög vel var mætt á tónleikana en um hundrað manns mættu og margir þeirra einnig þema klæddir. Myndaðist við þetta skemmtileg stemning og nutu allir kvöldsins. Voru allir sammála um að umhverfið hefði ekki síst átt þátt í stemningunni, en tónlistin var þó í aðalhlutverki.",
"innerBlocks": []
}