Fiskmóttaka fyrir alla á Akranesi

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Í frétt í Skessuhorni í síðustu viku var m.a. sagt frá grillveislu sem Sæljón, félag smábátaeigenda á Akranesi, stóð nýverið fyrir við Akraneshöfn. Í fréttinni var missagt að Böðvar Ingvason væri starfsmaður Fiskmarkaðs Snæfellsbæjar. Svo er ekki lengur. Hið rétta er að Böðvar rekur fiskmóttöku á Akranesi og þjónar þar hverjum þeim sem landa vill fiski á Akranesi, óháð því hvar viðkomandi selur aflann. „Það stendur öllum til boða að nota aðstöðuna hér á Akranesi til löndunar og sölu á fiski, en starfsemin er á vegum fyrirtækis míns Emilíu AK-57 útgerð,“ segir Böðvar.",
  "innerBlocks": []
}
Fiskmóttaka fyrir alla á Akranesi - Skessuhorn