Umhverfisvaktin ályktar um losun mengandi efna

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Umhverfisvaktin við Hvalfjörð samþykkti á síðasta aðalfundi sínum ályktun, sem óskað var eftir birtingu á. Hún er svohljóðandi:\r\n\r\n„Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð, haldinn 7. apríl 2022, skorar á ríkisstjórn Íslands að láta fara fram endurskoðun á starfsleyfum stóriðjufyrirtækjanna á Grundartanga, með það að markmiði að þau dragi nú þegar úr losun mengandi efna svo sem koldíoxíðs, flúors og brennisteins. Ástandið er alvarlegt. Til dæmis er losun koldíoxíðs (CO2) frá Elkem og Norðuráli orðin um ein milljón tonna á ári, en það er verulegur hluti af losun Íslands á CO2. Tækni til að nýta CO2 til rafeldsneytis er á tilraunastigi og ekki hægt að gera ráð fyrir henni sem dugandi mótvægisaðgerð strax, gegn svo gríðarlegri losun þessarar gróðurhúsalofttegundar.“",
  "innerBlocks": []
}
Umhverfisvaktin ályktar um losun mengandi efna - Skessuhorn