Fréttir

true

Stofnfundur Gleipnis var haldinn á Bifröst

Í gær fór fram stofnfundur Gleipnis, nýsköpunar- og þróunarseturs á Vesturlandi ses. Í Háskólanum á Bifröst var meðal annars skrifað undir stofnsamning og kosið í stjórn Gleipnis. Stofnfundur þessi er haldinn í framhaldi af undirritun viljayfirlýsingar í ágúst síðastliðnum þess efnis að nýsköpunar- og þróunarsetur yrði sett á stofn og var undirbúningsstjórn skipuð til þess…Lesa meira

true

Krapi og hálka á fjallvegum

Svo virðist sem veturinn virðist ekki viðurkenna að honum átti að vera lokið 20. apríl. Nú hylur snjóþekja allan norðurhluta landsins og þar er spáð slyddu eða snjókomu í dag. Skýjað verður með köflum hér sunnantil á landinu og stöku skúrir, en allvíða rigning eða slydda í kvöld. Samkvæmt Vegagerðinni er nú krapi á vegum…Lesa meira

true

Tíu slökkviliðsmenn útskrifaðir hjá Slökkviliði Akraness og Hvalfjarðarsveitar

Í síðustu viku fór fram útskrift hjá Slökkviliði Akraness og Hvalfjarðarsveitar á tíu nýliðum sem lokið hafa námi frá Brunamálaskóla Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Námið saman stendur af fjórum bóklegum- og verklegum námshlutum. Nemendur fá m.a. þjálfun í hefðbundnu slökkvistarfi, reykköfun og björgun fólks úr bílslysum. Umsjón með náminu höfðu Sigurður Þór Elísson þjálfunarstjóri slökkviliðsins og…Lesa meira

true

Systurnar frá Íslandi komust í úrslit Eurovision

Framlag Íslands í söngvakeppni evrópsku söngvakeppninnar komst, eitt tíu laga, áfram í gærkvöldi í úrslit. Systur frá Íslandi og bróðir þeirra voru númer fjórtán á svið í höllinni í Tórínó á Ítalíu og stóðu þau sig vel með flutningi á laginu Með hækkandi sól. Á fimmtudagskvöld kemur svo í ljós hvaða lönd fylgja Íslandi í…Lesa meira

true

Eurovision er besta geðlyfið

Evrópska söngvakeppnin er haldin undir sérstökum formerkjum í ár vegna stríðsins í Úkraínu og samstöðunnar sem það hefur kallað fram meðal íbúa álfunnar. En það hefur reyndar alltaf verið sérstök stemning í kringum keppnina og þá ekki síst á forsendum tónlistarinnar sem er jú alþjóðleg í eðli sínu. Skessuhorn hafði upp á manni sem býr…Lesa meira

true

Fjöldi kajak ræðara á námskeiði á Arnarstapa

Yfir 60 kajak ræðarar voru saman komnir um liðna helgi á Arnarstapa á Snæfellsnesi til þess að njóta leiðsagnar og kennslu í meðferð bátanna. Hópnum var skipt í þrennt. Voru þátttakendur frá 15 þjóðlöndum á öllum aldri, eða frá 20 ára og upp í 80 ára, af báðum kynjum. Farið var yfir öryggisþætti og beitingu…Lesa meira

true

Aðalsteinn í innviðina

Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra hefur skipað Aðalstein Þorsteinsson í embætti skrifstofustjóra sveitarfélaga og byggðamála í ráðuneytinu. Aðalsteinn var valinn úr hópi margra hæfra umsækjenda að fengnum tillögum frá ráðgefandi hæfnisnefnd. Hann mun taka við embættinu 1. júní næstkomandi. Frá 2002 hefur hann starfað sem forstjóri Byggðastofnunar og á þeim tíma leitt stofnunina í gegnum umtalsverðar…Lesa meira

true

Nýsköpunarsetur fyrir matvælaframleiðslu formlega stofnað

Síðdegis í gær gengust Landbúnaðarháskóli Íslands og Háskólinn á Bifröst fyrir stofnfundi Nýsköpunar- og þróunarseturs á Vesturlandi ses. Félagið hefur fengið nafnið Gleipnir. Stofnun setursins er í framhaldi af viljayfirlýsingu sem undirrituð var á Hvanneyri í ágúst á síðasta ári. Nýja nýsköpunar- og þróunarsetrið snýr að matvælaframleiðslu á öllum stigum framleiðsluferilsins og öllum þeim sviðum…Lesa meira

true

Fyrst til að útskrifast úr háskólanámi á vegum vinnuveitanda

Í gær útskrifuðust átta starfsmenn Samkaupa með sérstakar háskólagráður í verslunarfræðum frá Bifröst og Háskólanum í Reykjavík. Hópurinn er sá fyrsti sem lýkur háskólanámi sem haldið er úti af vinnuveitanda hér á landi en kennslan og þróun verslunarfræðanámsins, sem nefnist Forysta til framtíðar, er alfarið fjármögnuð af Samkaupum. Útskriftarathöfnin fór fram í Hörpu að viðstöddum…Lesa meira

true

Ræðst í kvöld hvort Systur komast áfram

Í kvöld verður bein útsending í Ríkissjónvarpinu frá fyrri undankeppni Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva á Ítalíu, þar sem Systur stíga á svið fyrir hönd Íslands. Eins og kunnugt er unnu þær Sigga, Beta og Elín ásamt Eyþóri bróður sínum keppnina hér heima í mars með lagið Með hækkandi sól eftir Lovísu Elísabetu Sigrúnardóttur (Lay Low) og…Lesa meira