{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Í kvöld verður bein útsending í Ríkissjónvarpinu frá fyrri undankeppni Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva á Ítalíu, þar sem Systur stíga á svið fyrir hönd Íslands. Eins og kunnugt er unnu þær Sigga, Beta og Elín ásamt Eyþóri bróður sínum keppnina hér heima í mars með lagið Með hækkandi sól eftir Lovísu Elísabetu Sigrúnardóttur (Lay Low) og keppa undir heitinu Systur.\r\n\r\nÍ kvöld verða sautján lög flutt. Albanía byrjar og Systur eru nr. 14, á eftir Austurríki og á undan Grikklandi. Aðeins tíu lög komast áfram á lokakvöldið næstkomandi laugardag og er því mikil spenna í lofti hér heima. Seinni undankeppnin verður á fimmtudagskvöldið.",
"innerBlocks": []
}
Ræðst í kvöld hvort Systur komast áfram - Skessuhorn