
Stjórn Gleipnis; Margrét Jónsdóttir Njarðvík Háskólinn á Bifröst, Ragnheiður I Þórarinsdóttir Landbúnaðarháskóla Íslands, Sigurður H. Markússon Landsvirkjun, Páll S. Brynjarsson Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi og Þórdís Sif Sigurðardóttir sveitarstjóri í Borgarbyggð. Ljósm. glh.
Stofnfundur Gleipnis var haldinn á Bifröst
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Í gær fór fram stofnfundur Gleipnis, nýsköpunar- og þróunarseturs á Vesturlandi ses. Í Háskólanum á Bifröst var meðal annars skrifað undir stofnsamning og kosið í stjórn Gleipnis. Stofnfundur þessi er haldinn í framhaldi af undirritun viljayfirlýsingar í ágúst síðastliðnum þess efnis að nýsköpunar- og þróunarsetur yrði sett á stofn og var undirbúningsstjórn skipuð til þess að vinna að verkefninu. Markmið með stofnun Gleipnis er að skapa umhverfi fyrir samvinnu, þróun og miðlun ólíkrar þekkingar á sviði rannsókna, nýsköpunar og sjálfbærni með það að leiðarljósi að styrkja samkeppnisaðstöðu íslensks samfélags, efla atvinnu og byggðaþróun og auka lífsgæði í landinu. Þá er nýja setrinu einnig ætlað að vera virkur þátttakandi í að ná fram markmiðum og skuldbindingum stjórnvalda á sviðum nýsköpunar og fræðslu á sviði landbúnaðar, matvælaframleiðslu, sjálfbærni og loftslagsmála, auk þess að efla nýsköpunar- og frumkvöðlastarf á landsbyggðinni.\r\n\r\n<strong>Stofnaðilar og megin áherslur</strong>\r\n\r\nStofnaðilar Gleipnis eru: Landbúnaðarháskóli Íslands, Háskólinn á Bifröst, Landsvirkjun, Borgarbyggð, Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi, Háskóli Íslands, Íslandsstofa, Orkustofnun, Breið – Þróunarfélag á Akranesi, Ráðgjafamiðstöð landbúnaðarins, Símenntunarmiðstöð Vesturlands, Hugheimar; frumkvöðla- og nýsköpunarsetur og Auðna Tæknitorg. Samkvæmt stofnsamningi Gleipnis verður megináhersla starfseminnar á næstu fimm árum lögð á atriði á borð við námsstyrki til matvælaframleiðslu á framhalds- og háskólastigi. Efla á rannsóknir á sviði landbúnaðar og matvælaframleiðslu í þágu loftslagsmála, náttúruverndar, landgæða og nýsköpunar í framleiðslu. Efla á innlenda landbúnaðarframleiðslu og styrkja og fjölga stoðum landbúnaðar og annarra greina í dreifbýli á grunni sjálfbærrar nýtingar í þágu loftslagsmála, umhverfis, náttúruverndar og fjölbreytni í ræktun. Ýta á undir framtak og frumkvæði bænda með fræðslu, ráðgjöf og nýsköpun.\r\n\r\n<strong>Nafnið sótt í norræna goðafræði</strong>\r\n\r\nHöfuðstöðvar Gleipnis verða í Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri í Borgarfirði en nafn setursins er sótt í norræna goðafræði. Gleipnir nefndist galdrafjötur sem æsir notuðu til að binda Fenrisúlf. Með vísan til Gleipnis er verið að leggja áherslu á framsækni og að hugsa stórt og þá sérstaklega út fyrir rammann og gera hið ómögulega mögulegt, eins og Ragnheiður I. Þórarinsdóttir, rektor Landbúnaðarháskóla Íslands kynnti fyrir fundargestum. Að lokum var kosið í stjórn og voru eftirtaldir aðilar kjörnir í stjórn Gleipnis nýsköpunar- og þróunarseturs á Vesturlandi ses: Ragnheiður I Þórarinsdóttir Landbúnaðarháskóla Íslands, Margrét Jónsdóttir Njarðvík Háskólanum á Bifröst, Sigurður H. Markússon frá Landsvirkjun, Þórdís Sif Sigurðardóttir sveitarstjóri í Borgarbyggð og Páll S. Brynjarsson framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi. Þá voru kjörin í varastjórn Ásthildur Bragadóttir, Stefán V. Kalmansson og Pétur Þ. Óskarsson.",
"innerBlocks": []
}