Háskólamenntað verslunarfólk. Ljósm. aðsend.

Fyrst til að útskrifast úr háskólanámi á vegum vinnuveitanda

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Í gær útskrifuðust átta starfsmenn Samkaupa með sérstakar háskólagráður í verslunarfræðum frá Bifröst og Háskólanum í Reykjavík. Hópurinn er sá fyrsti sem lýkur háskólanámi sem haldið er úti af vinnuveitanda hér á landi en kennslan og þróun verslunarfræðanámsins, sem nefnist Forysta til framtíðar, er alfarið fjármögnuð af Samkaupum.\r\n\r\nÚtskriftarathöfnin fór fram í Hörpu að viðstöddum fjölskyldum og samstarfsfólki. Hrefna Sif Ármannsdóttir, einn útskriftarnemendanna, hélt ræðu í athöfninni og sagði frá því að hún hóf fyrst störf hjá Samkaupum árið 2010. Hún hafði þá aðeins lokið grunnskólaprófi og taldi nám ekki henta sér. Tveimur árum síðar fékk hún tækifæri til að taka diplómunám í verslunarstjórnun samhliða vinnu, sem kveikti hjá henni áhuga á frekara námi. Í framhaldinu kláraði hún stúdentsprófið og síðar þegar verslunarfræðanámið á háskólastigi var kynnt ákvað hún að slá til.",
  "innerBlocks": []
}
Fyrst til að útskrifast úr háskólanámi á vegum vinnuveitanda - Skessuhorn