Fullrúar stofnaðila. Á myndina vantar þó nokkra þeirra. Ljósm. glh.

Nýsköpunarsetur fyrir matvælaframleiðslu formlega stofnað

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Síðdegis í gær gengust Landbúnaðarháskóli Íslands og Háskólinn á Bifröst fyrir stofnfundi Nýsköpunar- og þróunarseturs á Vesturlandi ses. Félagið hefur fengið nafnið Gleipnir. Stofnun setursins er í framhaldi af viljayfirlýsingu sem undirrituð var á Hvanneyri í ágúst á síðasta ári. Nýja nýsköpunar- og þróunarsetrið snýr að matvælaframleiðslu á öllum stigum framleiðsluferilsins og öllum þeim sviðum samfélagsins sem sú framleiðsla tengist með beinum eða óbeinum hætti. Stofnaðilar voru tólf, en fulltrúa þeirra má sjá á meðfylgjandi mynd sem tekin var í gær. Nánar verður sagt frá Gleipni hér innan tíðar.",
  "innerBlocks": []
}
Nýsköpunarsetur fyrir matvælaframleiðslu formlega stofnað - Skessuhorn