{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra hefur skipað Aðalstein Þorsteinsson í embætti skrifstofustjóra sveitarfélaga og byggðamála í ráðuneytinu. Aðalsteinn var valinn úr hópi margra hæfra umsækjenda að fengnum tillögum frá ráðgefandi hæfnisnefnd. Hann mun taka við embættinu 1. júní næstkomandi. Frá 2002 hefur hann starfað sem forstjóri Byggðastofnunar og á þeim tíma leitt stofnunina í gegnum umtalsverðar breytingar. Að beiðni ráðherra tók hann tímabundið við starfi forstjóra Þjóðskrár Íslands og hefur gegnt því embætti frá 1. febrúar síðastliðnum.\r\n\r\nAðalsteinn er úr Stykkishólmi, lögfræðingur að mennt og lauk embættisprófi frá lagadeild Háskóla Íslands árið 1993. Hann hefur jafnframt lokið námi í opinberri stjórnsýslu fyrir stjórnendur í opinberum rekstri frá sama skóla. Arnar Már Elíasson settur forstjóri Byggðastofnunar mun áfram sinna því starfi þar til ráðinn verður nýr forstjóri. Jafnframt verður Hildur Ragnars sett tímabundið forstjóri Þjóðskrár Íslands til 1. ágúst næstkomandi.",
"innerBlocks": []
}