Fréttir

true

Bæta aðstöðu í Súgandisey – Klofið við Stöngina

Stykkishólmsbær hlaut í síðustu viku 15,8 milljóna króna styrk úr Framkvæmdasjóði Ferðamannastaða. Styrkurinn fer til að fjármagna áframhaldandi uppbyggingu í Súgandisey í samræmi við vinningstillögu hönnunarsamkeppni um Fjöreggið. Um er að ræða uppsetningu á handriði og minniháttar jarðvegsframkvæmdir austanmegin á eyjunni sem gefa gestum eyjarinnar kost á því að skoða Stöngina, bergdrangana sem standa austan…Lesa meira

true

Fjórtán Íslandsmeistaratitlar á Garpamóti um helgina

Íslandsmeistaramót Garpa í sundi fór fram um helgina í Ásvallalaug í Hafnarfirði. Á mótinu keppa 25 ára og eldri. Ríflega hundrað keppendur tóku þátt í mótinu, sem gerir það í röð fjölmennustu móta. Sundfélag Akraness átti sjö keppendur á mótinu og lönduðu þeir 14 Íslandsmeistaratitlum. Mótið var einnig stigamót milli félaga. Níu lið tóku þátt…Lesa meira

true

Fyrsta tap Skagaliðsins með skelli gegn Breiðabliki

Eftir að hafa fengið á sig tvö mörk á fyrstu sjö mínútum leiksins áttu Skagamenn því miður aldrei möguleika í leiknum gegn Breiðablik í dag í 1:5 tapi á Akranesvelli. Eftir nokkuð góða byrjun Skagamanna í Bestu deildinni í sumar urðu þeir loks að lúta í gras. Einn sigur og tvö jafntefli; alls fimm stig,…Lesa meira

true

Verkefnisstjórn mun undirbúa lagningu Sundabrautar

Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, kynnti á ríkisstjórnarfundi í gær tillögu um að skipa verkefnisstjórn sem hafa mun umsjón með og fylgja eftir undirbúningi Sundabrautar. Nefndin verður skipuð fulltrúum innviðaráðuneytis, Vegagerðarinnar, Reykjavíkurborgar og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Sérstakur verkefnisstjóri verður ráðinn til að starfa. „Sundabraut mun hafa í för með sér mikinn samfélagslegan ávinning og því er…Lesa meira

true

Þúsundasti leikur ÍA í efstu deild gegn Breiðabliki á morgun

Skagamenn mæta liði Breiðabliks í fjórðu umferð Bestu deildarinnar á morgun og leikur þá sinn þúsundasta leik í efstu deild Íslandsmóts karla í knattspyrnu. Fram kemur á síðunni Á Sigurslóð sem er ritstýrð af feðgunum Jóni Gunnlaugssyni og Stefáni Jónssyni að allt frá árinu 1946 þegar ÍA tók fyrst þátt á Íslandsmótinu hafi félagið leikið…Lesa meira

true

Mun betri afkoma Snæfellsbæjar en ráð hafði verið fyrir gert

Ársreikningur Snæfellsbæjar var til seinni umræðu í bæjarstjórn í gær. Í honum kemur fram að rekstur Snæfellsbæjar kom mun betur út en fjárhagsáætlun hafði gert ráð fyrir og var jákvæður um 160 milljónir króna árið 2021.  Útgjöld voru nánast á pari við fjárhagsáætlun. Tekið er fram í bókun bæjarstjórnar að eftirtektarvert er að forstöðumenn stofnana…Lesa meira

true

Þjónustumiðstöðin við Dalbraut vígð

Í gær fór fram formleg vígsla á þjónustumiðstöðinni við Dalbraut 4 á Akranesi og var mikill fjöldi mættur til að fagna tímamótunum. Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri hélt fyrstur ávarp og kom meðal annars inn á að talsverður ágreiningur hefði verið hvernig ætti að standa að þessu verkefni en sem betur fer hefðu þau fundið saman…Lesa meira

true

Bryggjan á Reykhólum endurbætt

Nú er hafinn undirbúningur endurbyggingar stálþilsbryggjunnar á Reykhólum og framkvæmdir hefjast í sumar. Verkið var boðið út í fyrra samkvæmt framkvæmdaáætlun siglingasviðs Vegagerðarinnar 2021-2024. Um endurbyggingu og stækkun bryggjunnar er að ræða og fyrir stuttu kom síðasti farmurinn af stáli til verksins að Reykhólum. Meira efni er væntanlegt á næstunni. Fyrirhugað er að lengja viðlegukant…Lesa meira

true

Allir nema átta bókstafir stafrófsins eru notaðir

Þegar rýnt er í framboð vegna sveitarstjórnarkosninganna 14. maí nk. má sjá að 6.367 einstaklingar, eða 1,7% þjóðarinnar, eru í framboði til setu í sveitarstjórnum landsins en um er að ræða 470 sæti sem eru í boði í 64 sveitarfélögum. Samkvæmt upplýsingum á vef Þjóðskrár Íslands eru 277.127 kjósendur á landinu. Af þeim eru flestir,…Lesa meira

true

Séra Þorbjörn Hlynur á förum eftir fjörutíu ár í starfi

Tímamót eru framundan í Borgarsókn á Mýrum í ljósi þess að séra Þorbjörn Hlynur Árnason sóknarprestur og prófastur í Vesturlandsprófastsdæmi hefur beðist lausnar úr embætti sóknarprests. Séra Þorbjörn Hlynur hefur þjónað sókninni með stuttum hléum í fjörutíu ár, eða frá 1982. Að sögn Péturs Markan, biskupsritara og samskiptastjóra Þjóðkirkjunnar, verður starfið nú auglýst. „Við gerum…Lesa meira