Skagamenn fagna Íslandsmeistaratitlinum árið 1970. Ljósm. af Á Sigurslóð.

Þúsundasti leikur ÍA í efstu deild gegn Breiðabliki á morgun

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Skagamenn mæta liði Breiðabliks í fjórðu umferð Bestu deildarinnar á morgun og leikur þá sinn þúsundasta leik í efstu deild Íslandsmóts karla í knattspyrnu. Fram kemur á síðunni Á Sigurslóð sem er ritstýrð af feðgunum Jóni Gunnlaugssyni og Stefáni Jónssyni að allt frá árinu 1946 þegar ÍA tók fyrst þátt á Íslandsmótinu hafi félagið leikið 999 leiki í efstu deild og orðið meistari 18 sinnum, fyrst árið 1951 og síðast árið 2011. Í þessum 999 leikjum hefur ÍA farið með sigur af hólmi í 470 leikjum, 208 lyktað með jafntefli og ÍA beðið lægri hlut í 321 leik. ÍA hefur í þessum leikjum skorað 1.804 mörk en fengið á sig 1.383. Vinningshlutfallið er 57% ÍA í vil.\r\n\r\n„Þetta er merkur áfangi í sögu knattspyrnunnar á Akranesi sem nær allt frá 1946 þegar ákveðið var að senda sameiginlegt lið knattspyrnufélaganna tveggja til keppni, en ekki í sitt hvoru lagi. Má fullyrða að þessi ákvörðum hafi átt stóran þátt í þeirri velgengni sem síðar varð. Fyrstu árin voru erfið en fljótt snerist það við. Með fyrsta meistaratitlinum 1951 kvað við nýjan tón í íslenskri knattspyrnu. Landsbyggðarlið hafði stimplað sig inn og gaf öðrum byggðalögum tóninn og jafnframt Reykjavíkurliðunum keppni sem um munaði. Nánast samfelld sigurganga stóð yfir í nánast 50 ár með litlum hléum. Þó eitthvað hafi verið gefið eftir á undanförnum árum er enn sami metnaður og var og vonandi styttist í að árangur verði á við það sem áður var.\r\n\r\nÍA er stórveldi í íslenskri knattspyrnu. 18 meistaratitlar segja sína sögu sem og ýmis önnur afrek sem fylgja slíkum árangri. Ekkert félag hefur unnið titilinn jafn oft á þeim tíma sem ÍA hefur verið þátttakandi. Markaskor liðsins er með því mesta sem þekkist, markakóngar á hverju strái og stærstu úrslit í einstaka leikjum. Samtakamáttur fólks á Akranesi gagnvart knattspyrnuliðinu hefur skipt miklu máli. Hér fyrr á árum var oft talað um að arðsemi fyrirtækja hafi oft snúist um stöðu knattspyrnuliðsins hverju sinni. Bæjarbragurinn snerist líka oft eftir gengi knattspyrnuliðsins.  Allt þetta hefur sína sögu og engin ástæða til að mikla það fyrir sér. Þó er vert á tímamótum sem þessum að rifja upp góðar minningar sem tengjast knattspyrnulífinu á Akranesi í áratugi.“\r\n\r\nLeikur ÍA og Breiðabliks fer fram á Akranesvelli á morgun og hefst klukkan 14.",
  "innerBlocks": []
}
Þúsundasti leikur ÍA í efstu deild gegn Breiðabliki á morgun - Skessuhorn