Klippt á borðann. Ljósm. vaks

Þjónustumiðstöðin við Dalbraut vígð

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Í gær fór fram formleg vígsla á þjónustumiðstöðinni við Dalbraut 4 á Akranesi og var mikill fjöldi mættur til að fagna tímamótunum. Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri hélt fyrstur ávarp og kom meðal annars inn á að talsverður ágreiningur hefði verið hvernig ætti að standa að þessu verkefni en sem betur fer hefðu þau fundið saman rétta farveginn sem væri virkilega ánægjulegt. Flutt var inn í húsið í september 2021 en það er 1328,8 fermetrar að stærð og heildarkostnaður verksins var 651 milljón króna. Sævar Freyr sagði einnig að hann sæi mikla möguleika á gefandi samstarfi milli Akraneskaupstaðar og Félags eldri borgara á Akranesi og nágrenni (FEBAN) á næstu árum við að þróa öflugt starf fyrir eldri borgara í þessu húsnæði. „Samstarf um þetta hús hefur orðið enn nánara en upphaflega var stefnt að þegar við fluttum hér öll saman, bæjarskrifstofan og FEBAN, inn í þetta hús og ég verð að segja að það er búið að vera yndislegt að fá að vera með ykkur og njóta samstarfsins með ykkur.“ Sævar vildi að lokum þakka öllum fyrrverandi og núverandi meðlimum bæjarstjórnar fyrir mikinn vilja til að efla aðbúnað, þjónustu og velferð eldri borgara bæjarins. Að þessu tilefni færði Sævar Freyr Ragnheiði Hjálmarsdóttur formanni FEBAN blómvönd og gaf henni gott knús.\r\n\r\nRagnheiður þakkaði góð orð í þeirra garð og sagði að þau væru afskaplega stolt og þakklát fyrir framlag fulltrúa FEBAN í þessu krefjandi verkefni. Þetta væri búið að vera langt ferli og stundum tækju góðar og réttar ákvarðanir svolítið langan tíma. „Á meðan á framkvæmdinni stóð var oft kannski tekist á í þeim nefndum sem þurfti um málið að fjalla og kannski ekki skrýtið þegar ólík sjónarmið á verkefnið voru til staðar. En allt er gott sem endar vel og endanleg útfærsla er glæsileg og öllum til sóma. Við höfum lagt áherslu á að við ætluðum að koma inn í þetta hús full af gleði og þakklæti, lagt áherslu á að skapa létt og notalegt andrúmsloft og erum að njóta þess að vera komin heim. Ég vænti þess og óska að okkur takist áfram að skapa aðstæður og bjóða upp á viðfangsefni sem viðhalda og auka lífsgæði okkar í góðri samvinnu við alla sem hér starfa innanhúss.“ Ragnheiður sagði að endingu að í þeirra hópi væri mikill mannauður fólginn, fólk sem hefði reynt margt og kynni á mörgu skil. „Við viljum sannarlega ekki vera bara þiggjendur í samfélaginu heldur erum við tilbúin að leggja okkar af mörkum til samfélagsins í verkefnum eða öðru sem við gætum stutt við í okkar góða samfélagi.“\r\n\r\nEinar Brandsson bæjarfulltrúi tók síðan til máls og hélt smá söguskýringu um sögu hússins. Síðan var klippt á borðann og það gerðu fyrrverandi og núverandi formenn FEBAN. Að því loknu afhenti Guðríður Sigurjónsdóttir frá Menningar- og safnanefnd Akraneskaupstaðar öllum íbúum bæjarins sem verða 80 ára á árinu gjöf frá bænum en þau eru fædd sama ár og kaupstaðurinn hlaut kaupstaðarréttindi.\r\n\r\nSíðan söng Hljómur, kór eldri borgara, þrjú lög og gerði það með glæsibrag. Þar verður að nefna sérstaklega flottan flutning á laginu Faðmlög og freyðandi vín sem vakti mikla gleði hjá viðstöddum. Að lokum var boðið upp á léttar veitingar að lokinni athöfn og óhætt að segja að borðin hafi svignað undan kræsingunum.",
  "innerBlocks": []
}
Þjónustumiðstöðin við Dalbraut vígð - Skessuhorn