Mun betri afkoma Snæfellsbæjar en ráð hafði verið fyrir gert

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Ársreikningur Snæfellsbæjar var til seinni umræðu í bæjarstjórn í gær. Í honum kemur fram að rekstur Snæfellsbæjar kom mun betur út en fjárhagsáætlun hafði gert ráð fyrir og var jákvæður um 160 milljónir króna árið 2021.  Útgjöld voru nánast á pari við fjárhagsáætlun. Tekið er fram í bókun bæjarstjórnar að eftirtektarvert er að forstöðumenn stofnana Snæfellsbæjar voru að skila rekstri sinna stofnana enn eitt árið undir áætlun. Í bókun af fundinum kemur fram að annað árið í röð setti heimsfaraldur Covid-19 nokkurn svip á starfsemi og fjármál Snæfellsbæjar, þó í minna mæli en árið á undan. Reikningsleg stærð lífeyrisskuldbindinga setti stórt strik í afkomu Snæfellsbæjar árið 2021, líkt og hjá flestum öðrum sveitarfélögum, en á árinu var áætlaðri hlutdeild launagreiðenda breytt úr 55% í 62,1% sem gerði það að verkum að í bókhald Snæfellsbær færðust tæpar 99 milljónir sem ekki var gert ráð fyrir í fjárhagsáætlun.\r\n\r\nHelstu lykiltölur úr ársreikningi eru að rekstrartekjur námu 2.940 milljónum króna fyrir A- og B-hluta. Rekstrarniðurstaða samstæðunnar var jákvæð um 160 milljónir króna en samkvæmt fjárhagsáætlun var gert ráð fyrir neikvæðri afkomu upp á 21,6 millj. króna. Rekstrarafkoman varð því töluvert betri en áætlun gerði ráð fyrir, eða sem nemur 181,6 millj. króna. Eigið fé sveitarfélagsins í árslok nam 4.312 millj. króna skv. efnahagsreikningi en þar af nam eigið fé A-hluta 3.131 millj. króna. Laun og launatengd gjöld námu 1.541,4 milljónum króna en starfsmannafjöldi sveitarfélagsins var 143 stöðugildi í árslok. Veltufé frá rekstri var 259 millj. króna og veltufjárhlutfall er 0,75. Handbært fé frá rekstri var 239,5 millj. króna.\r\n\r\nHeildareignir bæjarsjóðs námu 5.042,3 millj. króna og heildareignir sveitarfélagsins í samanteknum ársreikningi um 6.373,2 millj. króna í árslok 2021. Heildarskuldir bæjarsjóðs námu um 1.911 millj. króna og í samanteknum ársreikningi um 2.061 millj. króna, og hækkuðu þar með milli ára um 52 milljónir.\r\n\r\n„Snæfellsbær hefur verið að greiða niður lán og minnka skuldir undanfarin ár og á árinu 2021 skapaðist svigrúm til að taka hagstætt lán til að greiða niður óhagstæðari lán, sem kemur rekstri bæjarfélagsins til góða á næstu árum. Hins vegar var verðbólga töluverð á árinu 2021 og jukust því skuldir Snæfellsbæjar að nafnvirði örlítið sem því nam á árinu 2021.  Hins vegar lækkuðu skuldirnar að raunvirði milli ára.“ Þá kemur fram að skuldahlutfall Snæfellsbæjar er 70,1% hjá samanteknum reikningi A- og B-hluta. Ef notað er skuldaviðmið skv. reglum um fjárhagsleg viðmið sveitarfélaga, þá fer prósentan niður í 61,17% fyrir A-hluta og 49,18% fyrir samstæðuna. Snæfellsbær hefur því töluvert svigrúm til lántöku ef kemur til einhverra stærri tekjufalla í framtíðinni,“ segir í bókun frá fundi bæjarstjórnar.",
  "innerBlocks": []
}
Mun betri afkoma Snæfellsbæjar en ráð hafði verið fyrir gert - Skessuhorn