Höfnin á Reykhólum, þangöflunarskipið Grettir við bryggju. Ljósmynd: SR.

Bryggjan á Reykhólum endurbætt

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Nú er hafinn undirbúningur endurbyggingar stálþilsbryggjunnar á Reykhólum og framkvæmdir hefjast í sumar. Verkið var boðið út í fyrra samkvæmt framkvæmdaáætlun siglingasviðs Vegagerðarinnar 2021-2024. Um endurbyggingu og stækkun bryggjunnar er að ræða og fyrir stuttu kom síðasti farmurinn af stáli til verksins að Reykhólum. Meira efni er væntanlegt á næstunni.\r\n\r\nFyrirhugað er að lengja viðlegukant til suðvesturs og bryggjan sem er eins og L í laginu verður T laga við breytingarnar. Bætir þetta umtalsvert öryggi og aðstöðu fyrir stærri flutningaskip sem hafa stundum átt erfitt í vondu veðri vegna þess að þau eru lengri en viðlegukanturinn. Enn fremur mun aðstaðan batna fyrir Gretti, þangöflunarskip Þörungaverksmiðjunnar, því meira skjól verður inni í höfninni en áður.\r\n\r\nAð sögn Sveins Ragnarssonar á Svarfhóli í Geiradal umsjónarmanns reykholar.is verður framkvæmdin nokkuð flókin því bryggjan þarf að vera í notkun allan framkvæmdatímann. Höfnin er lítil svo um annað fyrirkomulag er ekki að ræða. Hún er mikið notuð; Þörungaverksmiðjan landar hráefni flesta daga og skipar út í mjölskip nokkur skipti á ári. Einnig þarf Vegagerðin að skipa þar upp efni til brúargerðar í Þorskafirði.\r\n\r\nKostnaðaráætlun verkefnisins hljóðar upp á liðlega 300 milljónir króna. Það er Hagtak hf. sem undirbýr sjávarbotninn og Borgarverk sem rekur niður stálþilið. Verktakar eru nú að viða að sér efni, en afgreiðsla þess hefur dregist eitthvað vegna faraldursins. Menn eru þó bjartsýnir á að takist að ljúka framkvæmdum á næsta ári eins og fyrirhugað er.",
  "innerBlocks": []
}
Bryggjan á Reykhólum endurbætt - Skessuhorn