{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Þegar rýnt er í framboð vegna sveitarstjórnarkosninganna 14. maí nk. má sjá að 6.367 einstaklingar, eða 1,7% þjóðarinnar, eru í framboði til setu í sveitarstjórnum landsins en um er að ræða 470 sæti sem eru í boði í 64 sveitarfélögum. Samkvæmt upplýsingum á vef Þjóðskrár Íslands eru 277.127 kjósendur á landinu. Af þeim eru flestir, eða 177.816, á höfuðborgarsvæðinu en fæstir kjósendur eru á Norðurlandi vestra, 5.514 talsins. Því má bæta við að alls eru framboðslistar 179 talsins í 51 sveitarfélagi og á bak við þá eru 25 listabókstafir. Bókstafir í íslenska stafrófinu eru 32 en 33 ef C er talið með og það er einmitt einn af listabókstöfunum. Það eru því aðeins átta bókstafir sem ekki eru í notkun í þessum kosningum. Þeir eru: Ð, É, Ó, R, Ú, X, Ý, og Æ.",
"innerBlocks": []
}
Allir nema átta bókstafir stafrófsins eru notaðir - Skessuhorn