Kvennasveit ÍA í 4*50m skriðsundi vann til gullverðlauna. F.v. Anna Leif Auðar Elídóttir, Silvia Llorenz, Arnheiður Hjörleifsdóttir og Kristín Minney Pétursdóttir.

Fjórtán Íslandsmeistaratitlar á Garpamóti um helgina

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Íslandsmeistaramót Garpa í sundi fór fram um helgina í Ásvallalaug í Hafnarfirði. Á mótinu keppa 25 ára og eldri. Ríflega hundrað keppendur tóku þátt í mótinu, sem gerir það í röð fjölmennustu móta. Sundfélag Akraness átti sjö keppendur á mótinu og lönduðu þeir 14 Íslandsmeistaratitlum. Mótið var einnig stigamót milli félaga. Níu lið tóku þátt og varð sundlið ÍA í 3. sæti í stigakeppninni, á eftir fjölmennum liðum Sundfélags Hafnarfjarðar og Sunddeildar Breiðabliks. Mótið var hið litríkasta, með keppendum á aldursbilinu 25-90 ára. Gleðin var svo sannarlega ríkjandi, og að loknu móti var haldið glæsilegt lokahóf á Ásvöllum fyrir keppendur.\r\n\r\n<strong>Íslandsmeistarar Sundfélags Akraness eru:</strong>\r\n\r\n<em>Kári Geirlaugsson:</em> 50m skriðsund, 100m baksund, 100m fjórsund, 50m baksund og 100m skriðsund.\r\n\r\n<em>Kristín Minney Pétursdóttir:</em> 100m bringusund, 50m skriðsund, 50m bringusund, 200m skriðsund, 200m fjórsund, 100m skriðsund.\r\n\r\n<em>Silvia Llorenz:</em> 50m flugsund.\r\n\r\n<em>Anna Leif Auðar Elídóttir:</em> 100m skriðsund.\r\n\r\nAuk þess sigraði kvennasveit ÍA í 4*50m skriðsundi en sveitina skipuðu Kristín Minney Pétursdóttir, Anna Leif Auðar Elídóttir, Silvia Llorenz og Arnheiður Hjörleifsdóttir. Sama sveit hafnaði í öðru sæti í 4*50m fjórsundi.\r\n\r\nBlönduð sveit ÍA í 4*50m fjórsundi uppskar silfur en hana skipuðu: Kári Geirlaugsson, Jóhann Pétur Hilmarsson, Kristín Minney Pétursdóttir og Anna Leif Auðar Elídóttir.\r\n\r\nÞá gerði Alexander Eck sér lítið fyrir og vann til silfurverðlauna í 800 metra skriðsundi á nýju persónulegu meti.\r\n\r\nÞessu til viðbótar náðu eftirfarandi sundmenn lágmörkum á Evrópumeistaramót garpa sem fram fer í Róm í ágúst: Kristín Minney Pétursdóttir, Kári Geirlaugsson, Anna Leif Auðar Elídóttir, Silvia Lllorenz og Alexander Eck.",
  "innerBlocks": []
}
Fjórtán Íslandsmeistaratitlar á Garpamóti um helgina - Skessuhorn