Fréttir

true

Mozart færir sig um set

Hárnyrtistofan Mozart mun loka á Skagabraut 31 þann 1. maí næstkomandi en stofan hefur verið þar til húsa síðastliðin 18 ár. Stefanía Sigurðardóttir, eigandi Mozart, mun halda áfram rekstri á Dvalarheimilinu Höfða þar sem hún hefur unnið samhliða rekstri Mozart síðustu þrjú ár og verður stofan öllum opin. Stefa er enginn nýgræðingur í þessum bransa…Lesa meira

true

Nýr húsvörður í Grundaskóla

Lárus Guðjónsson hefur verið ráðinn í starf húsumsjónarmanns í Grundaskóla á Akranesi. Húsvarðarstarf í Grundaskóla var lagt niður fyrir um áratug vegna skipulagsbreytinga hjá Akraneskaupstað en nú hefur verið ákveðið að endurvekja þetta starf í skólanum. Húsumsjónarmaður mun einnig sinna þjónustu við leikskólana Garðasel og Akrasel. Lárus mun hefja störf í Grundaskóla í byrjun júní.Lesa meira

true

Fjölskyldu- og skátamessa í sumarbyrjun

Fjölskyldumessa í samstarfi við Skátafélag Akraness var í Akraneskirkju fyrsta sumardag, síðastliðinn fimmtudag. Að sögn sr. Þóru Bjargar Sigurðardóttur hófst dagskráin með skrúðgöngu frá Tónlistarskólanum og að kirkjunni. Þar var stutt fjölskyldustund og mikið sungið. Hoppukastali og pylsur voru í boði á Bjargarsteinslóðinni við Vinaminni. Á þriðja hundrað gestir mættu og var mikil og góð…Lesa meira

true

Veruleg aukin umsvif í Grundarfjarðarhöfn

Landaður afli í Grundarfjarðarhöfn árið 2021 var 23.677 tonn og jókst um tæplega þriðjung frá árinu 2020 þegar ársaflinn var 18.482 tonn. Í janúar til mars á þessu ári var landað rétt tæpum níu þúsund tonnum í Grundarfjarðarhöfn og jókst landaður afli um ríflega 60% frá sama tímabili árið 2021, þegar landað var um 5.500…Lesa meira

true

Ný viðbygging við leikskólann í Stykkishólmi

Ný viðbygging við leikskólanna í Stykkishólmi hefur verið tekin í notkun en síðasta föstudagsmorgun mættu foreldrar með börnin sín á nýja Bakka. Að sögn leikskólastjóra var ekki annað að sjá en að börnin væru glöð með nýtt umhverfi enda búin að fylgjast grannt með framvindu byggingarinnar undanfarna mánuði. Fram kemur á vefsíðu Stykkishólmsbæjar að vegna…Lesa meira

true

Skagamenn skelltu Íslandsmeisturunum

ÍA og Víkingur Reykjavík mættust í 2. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu í gær og fór leikurinn fram á Akranesvelli. Leikurinn fór rólega af stað en á 19. mínútu kom fyrsta færi leiksins þegar Eyþór Aron Wöhler átti góðan sprett og sendi boltann fyrir á Gísla Laxdal Unnarsson sem skaut að marki en markvörður…Lesa meira

true

Lokahóf Snæfells í körfunni

Lokahóf Körfuknattleiksdeildar Snæfells í Stykkishólmi var haldið síðasta miðvikudag og áttu meistaraflokkarnir ásamt stjórn góða stund saman. Að venju voru leikmenn verðlaunaðir fyrir árangur sinn í vetur og aðrir hvattir til þess að halda áfram þeirri góðu þróun sem hóparnir sýndu. Í meistaraflokki kvenna hlutu verðlaun fyrir tímabilið þau Rebekka Rán Karlsdóttir sem var mikilvægust,…Lesa meira

true

Þjóðleikhúsið frumsýnir Prinsinn í Frystiklefanum í Rifi

Næstkomandi miðvikudag frumsýnir Þjóðleikhúsið, í samstarfi við Frystiklefann í Rifi, nýtt íslenskt leikrit; Prinsinn, eftir Maríu Reyndal og Kára Viðarsson. Verkið er byggt á sönnum atburðum en það er byggt á reynslu Kára sem horfðist í augu við það sautján ára gamall að eiga von á barni. „En hversu áreiðanlegt vitni er maður í sinni…Lesa meira

true

Fuglaflensa að greinast víða um landið

Fuglaflensuveirur af gerðinni H5 greindust í átta sýnum af fimmtán sem tekin voru úr villtum fuglum í vikunni sem leið og rannsökuð voru á Tilraunastöð HÍ að Keldum. Í tilkynningu frá MAST kemur fram að fimm sýni voru með óljósa svörun og verða rannsökuð nánar, en í tveimur sýnum greindust ekki fuglaflensuveirur. Sýni sem tekin…Lesa meira

true

Kári kominn í 32-liða úrslit Mjólkurbikarsins eftir sigur á Víkingi Ó

Knattspyrnufélagið Kári tók á móti nágrönnum sínum af Snæfellsnesinu, Víkingi Ólafsvík, í 2. umferð Mjólkurbikars karla í gær og fór leikurinn fram í Akraneshöllinni. Um sannkallaðan Vesturlandsslag var að ræða en í boði var sæti í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins. Spennustigið var því hátt í leiknum og það dró strax til tíðinda á 20. mínútu leiksins…Lesa meira