Fréttir

true

Nöfn komin á götur á Sementsreitnum á Akranesi

Á fundi bæjarstjórnar Akraness í gær kom fram að alls kusu 137 einstaklingar um götuheiti á Sementsreitnum. Sem nafn á götu A hlaut Sementsbraut flest atkvæði eða 34% atkvæða. Hlutskörpustu nöfnin á götum B, C, D og E voru nöfnin Freyjugata, Óðinsgata, Skírnisgata og Sleipnisgata en þau fengu 32% atkvæða. Skipulags- og umhverfisráð hafði farið…Lesa meira

true

Fullt af tillögum um framtíðarútlit á Sáinu í Ólafsvík

Snæfellsbær efndi í ágúst síðastliðnum til hugmyndasamkeppni um framtíðarútlit á Sáinu í Ólafsvík og gátu áhugasamir sent inn tillögur að útliti og notkun á Sáinu til 26. september 2021. Markmiðið með samkeppninni var að óska eftir hugmyndum frá íbúum sem sveitarfélagið getur haft til hliðsjónar við fjárhagsáætlunargerð næstu ára. Fram kemur á vefsíðu Snæfellsbæjar að…Lesa meira

true

Vel gengur með byggingu þjóðgarðsmiðstöðvar á Hellissandi

Nýja Þjóðgarðsmiðstöðin á Hellissandi er nú búin að taka á sig mynd. Byggingin mun hýsa þjónustumiðstöð þjóðgarðsins með sýningar- og kennsluaðstöðu, auk rýma fyrir starfsmenn þjóðgarðsins, svo sem skrifstofur, geymslur og aðstöðu fyrir þjóðgarðsverði. Samtals er byggingin um 710 fermetrar. Byggingin samanstendur af tveimur meginbyggingum sem tengjast saman með miðrými. Önnur byggingin hýsir umsýslu fyrir…Lesa meira

true

Kokteilahátíð í Stykkishólmi um páskana

Kokteilahátíðin „Stykkishólmur cocktail weekend“ verður haldin hátíðleg fimmtudaginn 14. apríl til mánudagsins 17. apríl. Á hátíðinni keppa helstu barir og veitingastaðir bæjarins um að blanda besta kokteilinn en þetta kemur fram á vefsíðu Stykkishólmsbæjar. Allir staðirnir sem taka þátt munu bjóða upp á sinn keppnisdrykk yfir helgina á góðu verði. Dómnefnd fer síðan á milli…Lesa meira

true

Vorfílingur í ökumönnum

Lögreglan á Vesturlandi hefur undanfarið orðið vör við áberandi aukningu í hraðakstri hjá ökumönnum á svæðinu. Svo virðist að vorfílingur sé hlaupinn í ökumenn og þeir séu að kitla pinnann einum of mikið. Lögregla biður ökumenn að aka eftir aðstæðum og fara varlega eins og hægt er.Lesa meira

true

Miklar tafir á gatnaframkvæmdum á Suðurgötu

Undanfarna mánuði hafa verið í gangi gatnaframkvæmdir á Suðurgötu á Akranesi. Á vef Akraneskaupstaðar kemur fram að miklar tafir hafa orðið á verkinu og til dæmis hafi þurft að endurhanna hluta þess eftir að ástand lagna kom í ljós í götunni. Um gamlar lagnir er að ræða og var ástand þeirra óþekkt að miklu leyti…Lesa meira

true

Gróðureldur á fjalllendi inn af Flókadal

Slökkvilið Borgarbyggðar hefur verið kallað út vegna gróðurelds talsvert ofan við byggð í Flókadal í Borgarfirði. Líklega er eldurinn neðst í Þóreyjartungum eða á Lundartungu. Þá hafa björgunarsveitir einnig verið kallaðar til aðstoðar með fjór- og sexhjól til að ferja slökkviliðsmenn að eldinum. Hrísar er næsti bær við gróðureldinn. Að sögn Dagbjarts bónda í Hrísum…Lesa meira

true

Sveit Grunnafjarðar sigraði í aðalsveitakeppni BB

Aðalsveitakeppni Bridgefélags Borgarfjarðar lauk í gærkveldi. Til leiks mættu átta sveitir og komu spilarar frá Akranesi, Hvalfjarðarsveit og Borgarbyggð. Spilað var fjögur kvöld í Logalandi. Keppnin var spennandi allt fram á síðustu umferð, en þó voru sigurvegararnir sífellt að styrkja stöðu sína á toppnum eftir því sem leið á mótið. Úrslit urðu þau að sveit…Lesa meira

true

Gluggagægir á ferð

Seinni part laugardags var tilkynnt um rauðhærðan mann með skegg sem var að ganga að húsum og kíkja á glugga á Akranesi. Lögregla fór á staðinn en varð ekki vör við aðilann. Síðar sást í öryggiskerfi um hvaða aðila var að ræða og gat lögreglan borið kennsl á viðkomandi. Málið er talið upplýst en þó…Lesa meira

true

Héldu Páskasundmót í Ólafsvík

Á miðvikudaginn í síðustu viku var haldið Páskasundmót á vegum Ungmennafélaganna Víkings og Reynis í sundlauginni í Ólafsvík. Þrettán ungir og upprennandi sundkappar sem æft hafa sund í vetur tóku þátt og stóðu sig eins og hetjur. Eva Hannesdóttir hefur þjálfað sund í vetur en hún hefur sjálf æft og keppt í sundi og hefur…Lesa meira