Nöfn komin á götur á Sementsreitnum á Akranesi

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Á fundi bæjarstjórnar Akraness í gær kom fram að alls kusu 137 einstaklingar um götuheiti á Sementsreitnum. Sem nafn á götu A hlaut Sementsbraut flest atkvæði eða 34% atkvæða. Hlutskörpustu nöfnin á götum B, C, D og E voru nöfnin Freyjugata, Óðinsgata, Skírnisgata og Sleipnisgata en þau fengu 32% atkvæða.\r\n\r\nSkipulags- og umhverfisráð hafði farið yfir kosninguna varðandi götuheiti á Sementsreitnum og lagði til við bæjarstjórn að niðurstaða kosninganna yrði samþykkt. Forseti bæjarstjórnar, Valgarð L. Jónsson bar upp þá tillögu að greitt yrði um nafngift gatnanna í heild og voru ekki gerðar athugasemdir við þá tillögu. Bæjarstjórn Akraness samþykkti því götuheitin sem eru öll utan Sementsbrautarinnar nöfn úr íslenskri goðafræði.",
  "innerBlocks": []
}
Nöfn komin á götur á Sementsreitnum á Akranesi - Skessuhorn