
Sigurvegarar kampakátir að móti loknu. F.v. Ólafur Grétar, Þórður, Kristján og Flemming. Ljósm. se.
Sveit Grunnafjarðar sigraði í aðalsveitakeppni BB
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Aðalsveitakeppni Bridgefélags Borgarfjarðar lauk í gærkveldi. Til leiks mættu átta sveitir og komu spilarar frá Akranesi, Hvalfjarðarsveit og Borgarbyggð. Spilað var fjögur kvöld í Logalandi. Keppnin var spennandi allt fram á síðustu umferð, en þó voru sigurvegararnir sífellt að styrkja stöðu sína á toppnum eftir því sem leið á mótið. Úrslit urðu þau að sveit Grunnafjarðar bar sigur úr býtum með 108,10 stig. Hana skipuðu Skagamennirnir Þórður Elíasson og Ólafur Grétar Ólafsson auk þeirra Kristjáns Hallgrímssonar og Flemming Jessen úr Borgarfirði.\r\n\r\nÍ öðru sæti varð sveitin Sauðfjárbændur, en hana skipuðu Jón Eyjólfsson, Baldur Björnsson, Jóhann Oddsson og Kristján Axelsson. Fengu þeir 90,94 stig. Loks í þriðja sæti varð sveit Viktors Björnssonar með 88,2 stig. Auk Viktors voru í sveitinni Magnús Magnússon, Rúnar Ragnarsson, Guðjón Karlsson, Dóra Axelsdóttir og Unnsteinn Arason. Fengu þau 88,2 stig.",
"innerBlocks": []
}