Hér má sjá Ívar Sindra Karvelsson blanda keppnisframlag Hótel Egilsen árið 2016 þegar hátíðin var fyrst haldin. Ljósm. af vef Stykkishólmsbæjar

Kokteilahátíð í Stykkishólmi um páskana

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Kokteilahátíðin „Stykkishólmur cocktail weekend“ verður haldin hátíðleg fimmtudaginn 14. apríl til mánudagsins 17. apríl. Á hátíðinni keppa helstu barir og veitingastaðir bæjarins um að blanda besta kokteilinn en þetta kemur fram á vefsíðu Stykkishólmsbæjar.\r\n\r\nAllir staðirnir sem taka þátt munu bjóða upp á sinn keppnisdrykk yfir helgina á góðu verði. Dómnefnd fer síðan á milli staða og tilkynnir sigurvegarann á laugardagskvöldinu. Hægt er að taka þátt í happdrætti með því að safna límmiðum sem fást með keyptum drykk á hverjum stað. Dregið verður úr happdrættinu í Samkomuhúsinu, Aðalgötu 6, á laugardagskvöldinu. Þátttakendur hátíðarinnar í ár eru Fosshótel, Skipper, Narfeyrarstofa, Sjávarborg café, Sjávarpakkhúsið og Hótel Egilsen.\r\n\r\nDagskrá helgarinnar er fjölbreytt og má þar nefna pubquiz á Narfeyrarstofu, kokteilboð og tónleika í Norska húsinu, sex rétta smakkseðil með kokteila pörun í Sjávarpakkhúsinu, trúbador á Skipper og Partý bingó á Fosshóteli.\r\n\r\nNánari upplýsingar um hátíðina má finna á stykkisholmur.is.",
  "innerBlocks": []
}
Kokteilahátíð í Stykkishólmi um páskana - Skessuhorn