Yfirlitsmynd af Sáinu í Ólafsvík. Ljósm. af snb.is

Fullt af tillögum um framtíðarútlit á Sáinu í Ólafsvík

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Snæfellsbær efndi í ágúst síðastliðnum til hugmyndasamkeppni um framtíðarútlit á Sáinu í Ólafsvík og gátu áhugasamir sent inn tillögur að útliti og notkun á Sáinu til 26. september 2021. Markmiðið með samkeppninni var að óska eftir hugmyndum frá íbúum sem sveitarfélagið getur haft til hliðsjónar við fjárhagsáætlunargerð næstu ára. Fram kemur á vefsíðu Snæfellsbæjar að fjöldi hugmynda hafi borist og hefur tæknideild Snæfellsbæjar þær nú til skoðunar með framtíðarútlit og skipulag á Sáinu í huga.\r\n\r\nMargar skemmtilegar tillögur bárust og þar má nefna að hafa lítið þorp í stíl við Pakkhúsið í anda þess sem gert hefur verið á Selfossi með blandaðri nýtingu íbúða, skrifstofa, verslunar og þjónustu. Endurbyggja Dagsbrún og búa til fallega götumynd, skemmtilegt umhverfi og gott samkomusvæði fyrir íbúa. Að hafa glæsilegt hellulagt torg með gosbrunni, bæjarklukku, bekkjum og gróðri. Veita hátæknifyrirtæki lóðina frítt til uppbyggingar eða skapa fallegt miðbæjarsvæði með lágreistum húsum í anda þeirra sem voru áður á svæðinu að viðbættum bekkjum, leiktækjum og gróðri.\r\n\r\nFleiri hugmyndir um tillögur má sjá á vefsíðu Snæfellsbæjar.",
  "innerBlocks": []
}
Fullt af tillögum um framtíðarútlit á Sáinu í Ólafsvík - Skessuhorn