Barist við gróðurelda. Mynd úr safni og tengist fréttinni ekki.

Gróðureldur á fjalllendi inn af Flókadal

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Slökkvilið Borgarbyggðar hefur verið kallað út vegna gróðurelds talsvert ofan við byggð í Flókadal í Borgarfirði. Líklega er eldurinn neðst í Þóreyjartungum eða á Lundartungu. Þá hafa björgunarsveitir einnig verið kallaðar til aðstoðar með fjór- og sexhjól til að ferja slökkviliðsmenn að eldinum. Hrísar er næsti bær við gróðureldinn. Að sögn Dagbjarts bónda í Hrísum er óvíst um útbreiðslu eldsins og enn síður liggur ekki fyrir hvernig hann kviknaði. Sagði hann mögulega skýringu að neisti frá rafmagnsgirðingu hafi kveikt í.",
  "innerBlocks": []
}