
Svona var staðan á Suðurgötu síðastliðinn föstudag. Ljósm. vaks
Miklar tafir á gatnaframkvæmdum á Suðurgötu
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Undanfarna mánuði hafa verið í gangi gatnaframkvæmdir á Suðurgötu á Akranesi. Á vef Akraneskaupstaðar kemur fram að miklar tafir hafa orðið á verkinu og til dæmis hafi þurft að endurhanna hluta þess eftir að ástand lagna kom í ljós í götunni. Um gamlar lagnir er að ræða og var ástand þeirra óþekkt að miklu leyti áður en verkið hófst.\r\n\r\n„Nú fer þó að birta til og verktakinn getur farið að setja meiri þunga í framkvæmdirnar. Ykkur til upplýsinga þá verður kaldavatnslögnin endurnýjuð í götunni, niðurföll verða endurnýjuð og ný regnvatnslögn verður lögð í götuna. Þá verður skipt um jarðveg í götunni og hún endurbyggð. Nýtt malbik verður svo lagt yfir, kaflinn sem um ræðir nær frá Mánabraut að Suðurgötu 117. Gera má ráð fyrir að fyrri áfanginn sem er í gangi núna muni verða í vinnslu fram í maí. Síðari hluti verksins mun hefjast að fyrri áfanga loknum og ná eitthvað inn í sumarið.\"",
"innerBlocks": []
}