
Þjóðgarðsmiðstöð. Ljósm. af.
Vel gengur með byggingu þjóðgarðsmiðstöðvar á Hellissandi
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Nýja Þjóðgarðsmiðstöðin á Hellissandi er nú búin að taka á sig mynd. Byggingin mun hýsa þjónustumiðstöð þjóðgarðsins með sýningar- og kennsluaðstöðu, auk rýma fyrir starfsmenn þjóðgarðsins, svo sem skrifstofur, geymslur og aðstöðu fyrir þjóðgarðsverði. Samtals er byggingin um 710 fermetrar. Byggingin samanstendur af tveimur meginbyggingum sem tengjast saman með miðrými. Önnur byggingin hýsir umsýslu fyrir daglegan rekstur þjóðgarðsins en hin starfsemi sem snýr að kennslu, fræðslu og upplýsingastarfi á hans vegum.\r\n\r\nVerktakafyrirtækið Húsheild bauð lægst í byggingu Þjóðgarðsmiðstöðvarinnar í útboði sumarið 2020. Tilboð þess var um 420 milljónir króna, en kostnaðaráætlun Framkvæmdasýslu ríkisins hljóðaði upp á 475 milljónir króna. Húsheild reiknar með að skila húsinu í júní 2022.",
"innerBlocks": []
}