Fréttir

true

Samþykkt að framlengja lokunar- og viðspyrnustyrki

Alþingi samþykkti í gær frumvörp fjármála- og efnahagsráðherra um framhald lokunarstyrkja og viðspyrnustyrkja vegna heimsfaraldurs kórónuveiru. Framhald lokunarstyrkja er hugsað fyrir þá sem þurftu tímabundið að loka starfsemi sinni vegna sóttvarnaráðstafana og urðu af verulegum tekjum vegna þess. Úrræðið er í öllum meginatriðum sambærilegt og gilti um fyrri lokunartímabil í faraldrinum. Hámarksfjárhæð lokunarstyrkja verður hækkuð…Lesa meira

true

Talning ferðamanna í Dalabyggð

Á fundi atvinnumálanefndar Dalabyggðar síðastliðinn þriðjudag var tekið fyrir erindi Ferðamálastofu varðandi hentugan stað fyrir uppsetningu teljara en enginn teljari er nú til staðar í Dalabyggð. Ferðamálastofa stendur fyrir talningu á ferðamannastöðum víða um landið. Talningin fer fram með sjálfvirkum teljara sem telur gangandi vegfarendur með mikilli nákvæmni. Miðað er við að telja á stöðum…Lesa meira

true

Óvissustig Almannavarna vegna slæmrar veðurspár víða um land

Vegna veðurs sem er fram undan víða um land ákvað Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi, Suðurnesjum, Vesturlandi, Vestmannaeyjum og Vestfjörðum að lýsa yfir óvissustigi Almannavarna frá klukkan 08:00 í dag, föstudaginn 25. febrúar.  Samhæfingarmiðstöð Almannavarna hefur verið starfrækt frá klukkan 8:00 og verður fram eftir degi. Samkvæmt Veðurstofu Íslands verður versta veðrið…Lesa meira

true

Fella niður skóla í dag vegna veðurs

Ákveðið var að fella niður skóla í uppsveitum Borgarbyggðar og í Hvalfjarðarsveit vegna óveðurs í dag. En gul viðvörun er nú í gildi á þessu svæði og verður viðvörunin appelsínugul rétt fyrir hádegi í dag. Þá er einnig hálka eða hálkublettir víða á vegum.Lesa meira

true

Sagnaskemmtan á Skildi í Helgafellssveit

Rithöfundarnir Einar Kárason og Óttar Guðmundsson munu laugardaginn 26. febrúar klukkan 14 ræða meðal annars um Eyrbyggju og Sturlungu eins og þeim einum er lagið. Samkoman verður í Skildi í Helgafellssveit. Einar og Óttar hafa báðir, hvor á sinn hátt, gert Íslendingasögurnar að umfjöllunarefni í bókverkum sínum undanfarin misseri. Einar, einn ástælasti höfunda landsins, hefur…Lesa meira

true

Hafa aflétt öllum sóttvarnaaðgerðum

Öllum opinberum sóttvarnaaðgerðum var aflétt á miðnætti í gærkvöldi bæði innanlands og á landamærunum. Eru því engar takmarkanir nú í gildi á samkomum og einnig hefur fallið niður krafa um einangrun þeirra sem greinast með kórónuveiruna. Þá er ekki lengur boðið upp á PCR próf nema læknir telji þörf á því, þess í stað er…Lesa meira

true

Framkvæmdir ganga vel á Húsafelli

Framkvæmdir við nýtt fjörutíu húsa hverfi á Húsafelli í Borgarfirði ganga vel að sögn Bergþórs Kristleifssonar. Að jafnaði eru 20-26 starfsmenn sem koma að verkefninu. Fjórtán hús hafa verið reist og eru fimm nálægt því að verða fokheld. Spurður hvenær megi búast við því að fyrstu eigendur geti flutt í sín hús segist Bergþór ekki…Lesa meira

true

Tóku forskot á bollu-sæluna

Starfsfólk á Kaffi 59 í Grundarfirði tók forskot á sæluna og bauð upp á bollukaffi á sunnudaginn. Bolludagurinn sjálfur er ekki fyrr en mánudaginn 28. febrúar og því var ekki seinna vænna en að skella í bollur. Grundfirðingar tóku framtakinu vel og voru duglegir að mæta og gæða sér á nýbökuðum bollum. Eflaust verður þó…Lesa meira

true

Hafa kært alvarlega vanrækslu á búfé

Matvælastofnun hefur kært til lögreglu alvarlega vanrækslu á búfé á nautgripa- og sauðfjárbúi á Vesturlandi, en frá þessu er greint á heimasíðu Matvælastofnunar. Þar er sagt að um sé að ræða eitt umfangsmesta og alvarlegasta dýravelferðarmál sem hefur komið upp hér á landi. „Á þriðja tug nautgripa og um 200 fjár, auk 5 hænsna, drápust…Lesa meira

true

Vesturlandsdeildin hefst í kvöld

Vesturlandsdeildin í hestaíþróttum hefst klukkan 19 í kvöld með keppni í fjórgangi. Keppt verður í Faxaborg, reiðhöllinni í Borgarnesi. Fyrir tveimur árum varð að blása mótið af vegna heimsfaraldurs og á síðasta ári gafst áhorfendum ekki kostur á að fylgjast með mótinu á staðnum. Í kvöld gefst áhorfendum kostur á að fjölmenna í stúkuna og…Lesa meira