{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Matvælastofnun hefur kært til lögreglu alvarlega vanrækslu á búfé á nautgripa- og sauðfjárbúi á Vesturlandi, en frá þessu er greint á heimasíðu Matvælastofnunar. Þar er sagt að um sé að ræða eitt umfangsmesta og alvarlegasta dýravelferðarmál sem hefur komið upp hér á landi. „Á þriðja tug nautgripa og um 200 fjár, auk 5 hænsna, drápust eða voru aflífuð vegna skorts á fóðri og brynningu. Vörslusvipting hefur farið fram á um 300 kindum sem eftir eru á bænum og þeim tryggð fóðrun og umhirða og unnið er að ráðstöfun fjárins,“ segir á vef Matvælastofnunar. Stofnunin hefur bannað bóndanum allt dýrahald tímabundið þar til dómur fellur í málinu og hefur öllum hræjum verið fargað á viðurkenndum urðunarstað. „Búið hefur þrisvar sinnum fengið eftirlitsheimsókn frá Matvælastofnun á síðastliðnum sex árum, ekki komu fram alvarleg frávik við fóðrun eða aðbúnað í þeim heimsóknum. Síðasta reglubundna skoðun fór fram vorið 2021. Málið er nú til rannsóknar hjá lögreglunni á Vesturlandi.“",
"innerBlocks": []
}