Sagnaskemmtan á Skildi í Helgafellssveit

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Rithöfundarnir Einar Kárason og Óttar Guðmundsson munu laugardaginn 26. febrúar klukkan 14 ræða meðal annars um Eyrbyggju og Sturlungu eins og þeim einum er lagið. Samkoman verður í Skildi í Helgafellssveit.\r\n\r\nEinar og Óttar hafa báðir, hvor á sinn hátt, gert Íslendingasögurnar að umfjöllunarefni í bókverkum sínum undanfarin misseri. Einar, einn ástælasti höfunda landsins, hefur skrifað fjórar bækur sem byggja á sögulegum viðburðum þrettándu aldar. Bækurnar eru Óvinafagnaður, Ofsi sem hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin, Skáld og Skálmöld. Bækur Einars hafa hlotið einróma lof og vakið áhuga fólks á þessu róstursama tímabili Íslandssögunnar.\r\n\r\nÓttar Guðmundsson geðlæknir og rithöfundur hefur undanfarin ár velt fyrir sér geðrænum vandamálum í Íslendingasögunum á þrettándu öld. Bækur Óttars; Frygð og fornar hetjur, Hetjur og hugarvíl og Sturlunga geðlæknisins, fjalla á einn eða annan hátt um geðvandamál sögupersóna í Íslendingasögunum og hvaða áhrif þau höfðu á framgang sagnanna auk þess sem Óttar gerir ástalíf höfuðpersónanna að umfjöllunarefni í þeim. Helstu sögupersónur Íslendingasagnanna leggjast á bekkinn á geðlækninum.\r\n\r\nBlásið er til sagnaskemmtunar á Skildi á vegum Eyrbyggjasögufélagsins í Helgafellssveit. Félagið hefur undanfarið ár unnið að undirbúningi sýningar í félagsheimilinu Skildi, byggða á Sögu Þórsnesinga, Eyrbyggja og Álftfirðinga þar sem sögusvið hennar er í næsta nágrenni auk þess að teygja sig víðar um Snæfellsnes. Sagan skipar sér í hóp fimm bestu og margslungnustu Íslendingasagnanna að mati fræðimanna. Margar sögur innan úr heildarverkinu eru vinsælar t.a.m. sagan um Berserkina sem hvert skólabarn á Snæfellsnesi þekkir. Á síðasta ári stóð félagið fyrir þremur gönguferðum á söguslóðir sögunnar og var þátttaka góð. Námskeiðið Undur Eyrbyggju með Torfa Tuliniusi prófessor í miðaldabókmenntum í Háskóla Íslands var svo haldið í tengslum við gönguferðinar og var góður rómur gerður af námskeiðinu og þátttaka fram úr björtustu vonum. Á árinu er ætlunin að brydda upp á enn frekari dagsrká í tengslum við söguna í félagsheimilinu á Skildi auk þess sem unnið verður hörðum höndum að undirbúningi Eyrbyggjusýningarinnar sjálfrar.\r\n\r\nAllir eru hjartanlega velkomnir, aðgangseyrir 1000 kr. Kaffiveitingar.\r\n\r\n-fréttatilkynning",
  "innerBlocks": []
}
Sagnaskemmtan á Skildi í Helgafellssveit - Skessuhorn