Hafa aflétt öllum sóttvarnaaðgerðum

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Öllum opinberum sóttvarnaaðgerðum var aflétt á miðnætti í gærkvöldi bæði innanlands og á landamærunum. Eru því engar takmarkanir nú í gildi á samkomum og einnig hefur fallið niður krafa um einangrun þeirra sem greinast með kórónuveiruna.\r\n\r\nÞá er ekki lengur boðið upp á PCR próf nema læknir telji þörf á því, þess í stað er fólki bent á að bóka hraðpróf ef það finnur einkenni. Nærri tvö ár eru liðin frá því gripið var til fyrstu samkomutakmarkana hér á landi vegna faraldursins, en það var 13. mars 2020. Þegar mest var máttu aðeins tíu manns koma saman. Margir munu eflaust fagna þessum tímamótum um helgina en skemmtistaðir og veitingastaðir geta nú fært opnunartíma í fyrra horf og fólk getur tekið niður grímuna og lifað eðlilegu lífi eins og fyrir faraldur.\r\n\r\nEnn er mælt með því að fólk gæti að persónulegum sóttvörnum og haldi sig heima ef það finnur fyrir einkennum Covid-19.",
  "innerBlocks": []
}
Hafa aflétt öllum sóttvarnaaðgerðum - Skessuhorn